Viðskipti innlent
111 112 113 114 115 116 117 118 119 … 334 ›
Olís selur Mjöll Frigg Olís ehf., dótturfélag Haga hf. og Takk Hreinlæti ehf. undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Takk Hreinlætis á öllu hlutafé Mjallar Friggjar. Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent 8.7.2022 17:00
Innnes kaupir Arka Heilsuvörur Innnes ehf. hefur keypt innflutningsfyrirtækið Arka Heilsuvörur ehf.. Arka sem stofnað var árið 2002 hefur lagt áherslu á innfutning og dreifingu á heilsu- og lífstílsvörum. Viðskipti innlent 8.7.2022 16:52
Atvinnulausum fækkað um þúsund milli mánaða Skráð atvinnuleysi var 3,3 prósent í júní og minnkaði úr 0,6 prósent frá því í maí. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum því um 1.042 frá maímánuði. Viðskipti innlent 8.7.2022 15:51
Krónan styrkist en ekki á móti Bandaríkjadal Íslenska krónan hefur styrkst það sem af er ári á móti gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda okkar, að Bandaríkjadal undanskildum. Bandaríkjadalur hefur ekki verið sterkari á móti evru í 20 ár. Viðskipti innlent 8.7.2022 10:53
Tilboð hefur borist í Laugar í Sælingsdal Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur borist tilboð í ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal. Þorpið hefur verið til sölu frá árinu 2016 og illa hefur gengið að selja það. Viðskipti innlent 8.7.2022 10:41
Strandveiðisjómenn með 300 þúsund krónur á dag fá meiri kvóta frá Svandísi Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, úthlutaði strandveiðisjómönnum 430 milljóna króna verðmætum í dag með því að auka þorskkvóta sumarsins um nærri ellefu hundruð tonn. Viðbótin dugar þó vart nema til að framlengja strandveiðarnar út þennan mánuð. Viðskipti innlent 7.7.2022 21:44
Ríkið hagnist helst á heimsmarkaðshækkun olíuverðs Framkvæmdastjóri hjá Orkunni segir ríkið vera eina aðilann sem grætt hafi á hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu. Ríkið innheimti nú um tuttugu krónum meira á hvern lítra af bensíni en í byrjun janúar. Olíufélögin hafi lítið svigrúm til mikilla lækkana á bensínverði. Viðskipti innlent 7.7.2022 18:56
Hægt að hoppa um allt höfuðborgarsvæðið í fyrsta skipti Fyrirtækið Hopp sem leigir út rafhlaupahjól hefur nú fært út kvíar sínar og opnað fyrir leigu í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti. Þá stækkar fyrirtækið þjónustusvæði sitt annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og því er hægt að keyra um á rafskútu frá fyrirtækinu á öllu höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti. Viðskipti innlent 7.7.2022 16:44
Sigurður Jökull ráðinn markaðsstjóri Faxaflóahafna Faxaflóahafnir sf. hafa ráðið Sigurð Jökul Ólafsson í stöðu markaðsstjóra og tók hann við starfinu þann 1. júlí síðastliðinn. Viðskipti innlent 7.7.2022 16:25
Samkeppniseftirlitið hnýtir í Hörpu Samkeppniseftirlitið hefur beint tilmælum til Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss, um að jafna stöðu fyrirtækja og tónleikahaldara sem eiga viðskipti við húsið. Helstu tilmælin felast í því að Harpa ætti að leyfa tónleikahöldurum að koma með eiginn búnað, hljóðkerfi og fleira, til að nota við tónleikahald í húsinu. Viðskipti innlent 7.7.2022 13:03
Múgur og margmenni við opnun Elko og Krónunnar í Skeifunni Elko og Krónan opnuðu ný útibú í Mylluhúsinu í Skeifunni klukkan 9 í morgun. Áður en verslanirnar opnuðu var mikill fjöldi fólks mættur í röð fyrir utan Elko enda hundrað eintök af Playstation 5 til sölu í versluninni auk fjölda tilboða vegna opnunarinnar. Viðskipti innlent 7.7.2022 10:55
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. Viðskipti innlent 6.7.2022 20:38
Íslenski markaðurinn hóflegur í júní en sá kínverski í stórsókn Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði um 2,1 prósent í júní samanborið við 9,9 prósent lækkun í maí þegar öll félög markaðarins lækkuðu í verði. Sjö af tuttugu þeirra félaga sem skráð voru í byrjun mánaðar hækkuðu í verði, eitt stendur í stað og tólf lækka. Þrjú félög voru skráð í Kauphöllina í júní; Ölgerðin, Nova og Alvotech sem var tekið á markað í New York. Viðskipti innlent 6.7.2022 11:48
Hluthafar greiða atkvæði um að nafni Festi verði breytt í Sundrung Hluthafafundur félagsins Festi fer fram þann 14. júlí næstkomandi. Upphaflega var einungis eitt mál á dagskrá fundarins en nú hafa tvö bæst við, þar á meðal tillaga um að nafni félagsins verði breytt í Sundrung. Viðskipti innlent 6.7.2022 09:41
Arnar nýr framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu Arnar Már Snorrason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu með aðsetur á Dalvík, en Arnar tekur við starfinu af Daða Valdimarssyni sem mun færa sig í starf forstjóra Rotovia, nýstofnaðs móðurfélags Sæplasts. Undir Sæplasti í Evrópu tilheyrir starfsemi félagsins á Íslandi, Spáni og Noregi ásamt söluskrifstofum félagsins í Evrópu, Afríku og Asíu. Viðskipti innlent 6.7.2022 09:13
Fleiri mótfallin en fylgjandi innflutningi á landbúnaðarvörum Fleiri eru mótfallin frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum en fylgjandi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir Fréttablaðið. Viðskipti innlent 6.7.2022 06:21
Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. Viðskipti innlent 5.7.2022 14:41
Tilkynnt um eina hópuppsögn í júní Tilkynnt var um eina hópuppsögn til Vinnumálastofnunar í júní þar sem 39 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu vegna flutninga á starfsemi milli stofnana. Viðskipti innlent 5.7.2022 14:11
Margrét ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV Margrét Jónasdóttir hefur verið ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV. Hún mun hafa faglega umsjón með innkaupum og framleiðslu á heimildaefni. Jafnframt mun hún leiða, í samstarfi við dagskrárstjóra,hugmyndavinnu, þróun, framleiðslu, kaup, stefnumótun, gæðamat og gæðeftirlit með öllu heimildaefni fyrir sjónvarp. Viðskipti innlent 5.7.2022 12:55
Allir stjórnarmenn Festi tilnefndir til áframhaldandi setu Tilnefningarnefnd Festi hefur skilað inn skýrslu sinni til stjórnar félagsins. 21 bauð sig fram í stjórn og tilnefningarnefnd tilnefnir níu frambjóðendur til stjórnar sem fimm skipa, þar af alla núverandi stjórnarmenn. Viðskipti innlent 5.7.2022 10:25
SAS óskar eftir gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum Norræna flugfélagið SAS hefur leitað til dómstóla í New York í Bandaríkjunnum og óskað eftir gjaldþrotavernd þar vestra. Viðskipti innlent 5.7.2022 07:44
Taka varfærin skref í átt að stækkun eftir faraldurinn Icelandair tekur á leigu BOEING 767 breiðþotu næstu tvær vikurnar til að bregðast við ástandinu sem nú ríkir á flugvöllum í Evrópu. Truflanir á aðfangakeðju og mannekla á flugvöllum hefur leitt til þess að flugfélög hafa neyðst til að fella niður flug eða seinka ferðum. Bogi Nils Bogason, forstjóri stjóri Icelandair, segir vélina auka sveigjanleika og þjónustu við viðskiptavini. Viðskipti innlent 4.7.2022 14:45
Fjórfalda flotann og hlakka til að láta Hopp „svitna aðeins“ Rafhlaupahjólaleigan ZOLO færir nú út kvíarnar og fer heildarfjöldi hjóla hjá fyrirtækinu úr 250 í þúsund. Þá hefur fyrirtækið stækkað umsvifasvæði sitt, sem nær nú í Kópavog, Breiðholt, Árbæ og Grafarvog, en áður hafi félagið haldið sig miðsvæðis í Reykjavík. Framkvæmdastjórinn segist hlakka til að láta keppinautana „svitna aðeins.“ Viðskipti innlent 4.7.2022 11:30
Ógreiddar kröfur rúmlega 120 milljónir Ógreiddar kröfur í þrotabú bakarís Jóa Fel námu rúmlega 120 milljónum króna. Lýstar kröfur í búið námu 333 milljónum króna en samþykktar kröfur voru 140 milljónir. Tæpar tuttugu milljónir fengust upp í samþykktar kröfur. Viðskipti innlent 4.7.2022 10:36
Fjögur ráðin til Orkustofnunar Orkustofnun hefur gengið frá frá ráðningum í fjórar stöður til að efla miðlun og vinnslu gagna, en um er að ræða tvær stöður sérfræðinga í greiningum og gögnum, auk ráðningu nýs þróunarstjóra gagna og verkefnastjóra Orkuseturs. Viðskipti innlent 4.7.2022 08:44
Tveggja ára sögu Spaðans lokið Veitingastaðurinn Spaðinn, sem bauð upp á pitsur á matseðli, hefur lokað eftir ríflega tveggja ára starfsemi. Viðskipti innlent 4.7.2022 08:06
Icelandair leigir breiðþotu næstu tvær vikurnar Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300 flugvél sem nýtt verður í millilandaflugi Icelandair næstu vikur. Viðskipti innlent 4.7.2022 07:17
Embætti landlæknis hagnaðist um tæpar 300 milljónir Á rekstrarárinu 2021 hagnaðist Embætti landlæknis um 292 milljónir króna. Árið áður hagnaðist embættið um 36 milljónir króna og því er um að ræða rúmlega áttfalda hagnaðaraukningu milli ára. Viðskipti innlent 2.7.2022 15:18
Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. Viðskipti innlent 2.7.2022 07:07
Verðbólgan étur upp kaupmáttinn og skapar óvissu fyrir kjarasamningaviðræður í haust Mikil verðbólga hefur minnkað kaupmátt töluvert og er mjög löngu tímabili aukins kaupmáttar nú lokið að mati hagfræðideildar Landsbankans. Hagfræðingur hjá bankanum segir viðbúið að það taki einhver ár að ná verðbólgunni niður og að erfið staða blasi við í kjarasamningsviðræðum í haust. Viðskipti innlent 1.7.2022 12:03