Skoðun

Slagurinn harðnar

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Formannsslagurinn í samfylkingunni er greinilega að harna og skipting flokksins er að verða ljósari. Það er ekki skipting í vinstri verkalýðsarminn og hægri frjálslynda arminn. Það eru ekki málefnin sem skipta mönnum í tvennt innan flokksins, heldur virðist það einungis vera álit flokksmanna á því hver sé hæfari til að leiða flokkinn, Ingibjörg eða Össur. Það er því spurning um stjórnunarstíl og fylgi við ákveðna einstaklinga sem veldur skiptingunni í þetta skiptið.

Skiptingin milli Össurarliðsins og Ingibjargarliðsins er öllum ljós. Það eru nokkrir frammámenn innan flokksins sem ekki er vitað um hvar standa. Þar á meðal er nýtt varaformannsefni flokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson, sem ekki vill gefa upp hvorum megin hann stendur. Einnig er óljóst hvar þingmaðurinn Helgi Hjörvar stendur. Sumir segja að hann hafi kápuna á báðum öxlum. Aðrir segja að hann hafi kápuna á hvorugri.

Þessi tvískipting flokksins virðist vera að teygja sig inn í varaformannsembættið, að loknu landsþingi. Svona til að halda tvískiptingunni áfram. Mikið er um það rætt að varaformaðurinn verði að koma úr tapliðinu, það er þeim hópi sem ekki sigrar keppnina um formanninn. Því er litið til þeirra sem virðast hæfir, og vitað er til að tilheyrir öðrum hvorum hópnum. Ákall til Jóhönnu til að bjóða sig fram til varaformanns er ákall til þess að einhver úr stuðningshópi Össurar komist til einhverra valda ef Ingibjörg hrósar sigri. Svipað ákall mun að öllum líkindum koma frá herbúðum Ingibjargar ef hún nær ekki kjöri.

Ástæða skiptingarinnar, eins og áður sagði, er ekki málefnaágreiningur. Ástæða tvískiptingarinnar er mun frekar ósk um vald, eða hræðsla um að missa vald. Fólk í báðum hópum óttast eflaust að ef hinn aðilinn vinnur, þá munu þeir þingmenn sem studdu "tapliðið" ekki vera í ráðherrahópi formannsins. Því verður að tryggja varaformanninn til að tryggja sæti ef flokkurinn lendir í ríkisstjórn. 

Hvað á þá að gera við svona frambjóðendur til varaformanns eins og Ágúst Ólaf sem ætlar sér að halda sig fyrir utan ISG-ÖS slaginn? Sumir myndu telja að hann væri góður kostur til að viðhalda ekki tvískiptingunni.  Þessar tvær valdablokkir sem fyrir eru í flokknum vilja samt örugglega halda sínu striki áfram. Spurningin er því bara, er hægt að sameina Samfylkinguna aftur?

Svanborg Sigmarsdóttir - [email protected]




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×