Hagnaðurinn á Hesteyri 14. júní 2005 00:01
Fjárfesting Fiskiðjunnar Skagfirðings og Skinneyjar-Þinganess sumarið 2002 hefur skapað fyrirtækinu Hesteyri verðmæti sem í dag má meta til að minnsta kosti fjögurra milljarða króna. Kaup sameiginlegs félags fyrirtækjanna tveggja á tæplega fjórðungshlut í olíufyrirtækinu Keri hf., sem síðar varð næststærsti hluthafinn í Búnaðarbanka Íslands, skapaði fyrirtækjunum samningsstöðu sem urðu til þess að félagið hlaut í skiptum fyrir bréfin í Keri bréf í VÍS sem félagið á enn í dag. Það mun hafa verið að hugmynd Jóns Eðvalds Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar, að ákveðið var að virkja gamalt félag í eigu Kaupfélags Skagfirðinga til fjárfestingarinnar. Hvort félag um sig keypti helmingshlut í félaginu Hesteyri 2 ehf. og var nafni fyrirtækisins breytt í Eignarhaldsfélagið Hesteyri ehf. Skipuð var ný stjórn auk þess sem hlutafé var aukið verulega. Fulltrúar Skinneyjar-Þinganes í stjórninni urðu þeir Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri og Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður, en frá Fiskiðjunni þeir Jón Eðvald og Þórólfur Gíslason stjórnarformaður. Þeir Aðalsteinn og Gunnar eru náfrændur Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra en Þórólfur er forstjóri Kaupfélags Skagfirðinga sem er mjög umsvifamikið á ýmsum sviðum. Sama dag og Hesteyri skipti um lit keypti félagið 22,53% hlut í Keri af Straumi fjárfestingarbanka en Hesteyri hafði frumkvæði að viðskiptunum. Tilkynnt var um viðskiptin til Kauphallar Íslands 16. ágúst 2002. Valdabarátta og samningsstaða Kaup Hesteyrar lögðust illa í stærstu hluthafa Kers sem neituðu Hesteyri um hluthafafund sem félagið hafði óskað eftir til að koma mönnum í stjórn. Ástæðan mun hafa verið takmarkaður áhugi eins stærsta hluthafa Kers við að fá tiltekna fultrúa Hesteyrar í stjórn Kers. Höfnunin kom fulltrúum Hesteyrar í opna skjöldu. Átök og þreifingar áttu sér stað um ýmsar lausnir á þeim vanda sem upp var kominn. Voru Hesteyri boðnir ýmsir eignarhlutir í skiptum fyrir bréfin í Keri en að lokum varð það ofan á að félagið Norvík, sem var og er að mestu í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, keypti bréf Hesteyrar í Keri og Hesteyri fékk fjórðungshlut Norvíkur í VÍS í staðinn. Um þau viðskipti hefur meðal annars verið fjallað og fulllyrt að hluturinn í VÍS væri um sjö hundruð milljónum króna verðmætari en hluturinn í Keri. Um þá kenningu skal ekki fullyrt. Hitt er hins vegar ljóst að verðmæti bréfanna í Keri byggðust að stórum hluta á því að Ker var ásamt S-hópnum í vænlegri stöðu um kaup á Búnaðarbankanum og varð síðar næststærsti hluthafinn í bankanum í gegnum einkahlutafélagið Eglu, en hlutur Kers í bankanum varð síðar 35,2 prósent. Staða Hesteyrar var ekki síðri í gegnum VÍS því síðarnefnda fyrirtækið var einnig aðili að S-hópnum með um 13,1 prósenta hlut auk þess sem hlutur í VÍS var talinn góð fjárfesting. Hlutur Hesteyrar í VÍS Hesteyri greiddi um þrjá milljarða fyrir hlutinn í Keri og fjármagnaði kaupin með eigin fé fyrir um milljarð, en að öðru leyti með lánsfé frá Íslandsbanka. Félagið er enn í dag hluthafi í VÍS með um fjórðungshlut. Sé tekið mið af lokagengi VÍS þegar félagið var afskráð úr Kauphöll Íslands í lok ársins 2004 og útistandandi hlutafé má telja að félagið hafi þá verið um 27 milljarða króna virði sem er upphæð í lægri kantinum þegar meta á félagið í dag en félagið hefur skilað góðri afkomu af eigin rekstri auk þess sem það er stór hluthafi í KB banka. Þannig má ætla að hlutur Hesteyrar í VÍS sé fjórðungur þeirrar upphæðar, eða tæpir 7 milljarðar. Gengishagnaður Hesteyrar af VÍS frá því viðskiptin áttu sér stað er því að lágmarki 4 milljarðar sem raunar er ekki fjarri þeim hækkunum sem hafa átt sér stað á markaði á þessum tíma. Ekki er það þó svo að hluthafarnir séu aðeins tveir í Hesteyri, því VÍS hefur keypt þriðjung hlutafjár í félaginu en Hesteyri hefur einnig keypt um fimmtungshlut í Skinney-Þinganesi. Þriðjungur fjögurra miljarða er um 1.300 milljónir króna fyrir hvert félag, Skinney-Þinganes og önnur. Hægt er að reikna hlut Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu sem fjórðung þeirrar upphæðar, eða 325 milljónir. Hafa ber þó þann fyrirvara að um óinnleystan hagnað er að ræða. Það breytir því ekki að það er sú tala sem er lauslega reiknuð og einkum og aðeins til komin vegna þess að Skinney-Þinganes ákvað við annað fyrirtæki að fjárfesta í Keri sem hafði lykilstöðu í samningaviðræðum við kaup á ríkisbönkunum og síðar varð næststærsti hluthafi bankans.
Fréttir Innlent Salan á Búnaðarbankanum Stj.mál Viðskipti Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni Innlent Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Innlent „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Innlent Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Innlent Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Innlent Snjallsímar undanskildir tollunum Erlent Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Innlent Fleiri fréttir Myglaður laukur í poka og lamba eistu á matseðlinum Nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands: „Þetta er ekki eitthvað sem við viljum“ Fölsuð verk til sýnis á Listasafni Íslands Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Fyrirhuguð komugjöld á óvissutíma og fölsuð listaverk til sýnis Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni „Vinnan er rétt að hefjast“ Þyrlusveitin kölluð út á mesta forgangi vegna leka um borð í bát Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Ætli það sé heitt vatn í landi Hallanda í Flóahreppi? Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Bein útsending: Samfylkingin 25 ára Mikið högg fyrir nærsamfélagið Skemmdarverk unnin á Jónshúsi í skjóli nætur Gripinn við kókaínsmygl á nítjánda aldursári Tæplega þrjátíu ungmenni á leið í samkvæmi þegar slysið varð Réttindalaus dreginn af öðrum Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Endurskoða varðveislu á upptökum lögreglu eftir að gögnum var eytt Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Sjá meira