Hefur kært Dick Cheney fyrir að leka til fjölmiðla 15. júlí 2006 08:00 Joseph Wilson og Valerie Plame Sendiherrahjónin fyrrverandi segja bandaríska ráðamenn hafa stofnað lífi þeirra í hættu með því að leka til fjölmiðla að hún væri njósnari á vegum CIA. MYND/AP
Valerie Plame, fyrrverandi njósnari hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA, hefur lagt fram kæru á Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, Karl Rove, ráðgjafa Bandaríkjaforseta, og fleiri embættismenn Hvíta hússins í Washington. Hún sakar þá um að hafa skipulagt hvíslherferð með það að markmiði að eyðileggja feril hennar hjá leyniþjónustunni. Hún heldur því fram í kærunni að Cheney, Rove og I. Lewis Libby, sem er fyrrverandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, hafi lekið því til fjölmiðla að hún væri njósnari hjá CIA gagngert til þess að refsa eiginmanni hennar, Joseph Wilson, sem er fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna, fyrir það að hann sagði Bandaríkjastjórn hafa ýkt hættuna af Íraksstjórn til þess að réttlæta innrásina í Írak. Wilson hafði ferðast til Níger í Afríku og komist þar að raun um að líklega væri ekkert hæft í ásökunum Bush Bandaríkjaforseta um að Saddam Hussein hafi ætlað að útvega sér úran frá Afríku. Opinberlega var fyrst ljóstrað upp um að Plame væri njósnari í júlí árið 2003 í grein sem pistlahöfundurinn Robert Novak skrifaði. Novak hefur upplýst hann hafi á sínum tíma fengið staðfestingu fyrir því að Plame væri njósnari bæði hjá Karl Rove og Bill Harlow, upplýsingafulltrúa CIA.
Erlent Mest lesið Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Erlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Hætta við uppbyggingu við tjörnina í Seljahverfi Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum Sjá meira