Erla Þórarinsdóttir og Sævar Karl Ólason klæðskeri hafa selt fataverslun sína, Sævar Karl Bankastræti. Hlutur hjónanna í Bankastræti 7 sem hýst hefur verslun Sævars Karls um árabil fylgir með í kaupunum. Kaupverðið er trúnaðarmál.
Kaupendur eru Vesturhöfn ehf, í eigu Páls Kolbeinssonar og tengdra aðila og Arev N1 sem er einkafjármagnssjóður sérhæfður í smásölu. VBS fjárfestingarbanki hf. annaðist viðskiptin fyrir hönd kaupenda og fjármagnaði kaupin. Nýir eigendur hafa þegar tekið við rekstrinum og munu halda sömu stefnu hvað þjónustu, gæði og vöruúrval varðar.
Innlent