Forseti Fílabeinsstrandarinnar heimsækir norðurhluta landsins í fyrsta sinn í fimm ár 30. júlí 2007 09:43 Fólk í Bouake að fagna sameiningu landsins og táknrænni heimsókn Gbagbo til Bouake. MYND/AFP
Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, kom í dag í sína fyrstu heimsókn síðan árið 2002 til norðurhluta landsins en þá tóku uppreisnarmenn völdin í honum. Gbagbo er nú í Bouake sem er fyrrum höfuðvígi uppreisnarmanna. Þar mun hann verða viðstaddur sérstaka athöfn sem kallast „Friðarloginn" þar sem vopn verða brennd til þess að marka upphaf afvopnunarferlis uppreisnarmanna á svæðinu. Friðarsamkomulag var undirritað við fyrrum uppreisnarleiðtogann Guillaume Soro í mars síðastliðnum, en hann gegnir nú embætti forsætisráðherra í stjórn Gbagbo. Heimsókn Gbagbo er talin gríðarlega mikilvæg, ekki síst þar sem mikil óvissa ríkir um friðarferlið. Til marks um það er öryggisgæsla vegna heimsóknar hans gríðarmikil. Bæði stjórnarherinn og fyrrum uppreisnarmenn gæta forsetans. Þá koma friðargæsluliðar frá Frakklandi og Sameinuðu þjóðunum einnig að aðgerðunum. Dagurinn í dag var lýstur almennur frídagur en þegar að athöfnum verður lokið í Bouake verður friðarloginn borinn til 19 staða í landinu til þess að gefa til kynna að landsmenn hafi loks náð sáttum.
Erlent Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu Innlent Segir Selenskí á leið til Washington Erlent Fleiri fréttir Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Sjá meira