Íraksstríðið illa skipulagt Guðjón Helgason skrifar 10. ágúst 2007 12:12
Forsætisráðherra Danmerkur segir Íraksstríðið hafa verið illa skipulagt og ástandið í landinu nú langt frá því að vera viðunandi. Hann er þó enn þeirrar skoðunar að rétt hafi verið að fara með hervaldi gegn Saddam Hússein. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er ómyrkur í máli í viðtali við danska blaðið Politiken í dag. Hann viðurkennir að Íraksstríðið hafi verið illa skipulagt og segir ástandið þar í landi nú langt frá því viðunandi. Fogh-Rasmussen segist þó enn þeirrar skoðunar að rétt hafi verið að fara með hervaldi á hendur Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, þrátt fyrir að illa hafi gegnið. Hann segir þróunina hafa verið aðra en búist hafi verið við og viðurkennir forsætisráðherranna að styrkur öfgamanna í Írak hafi verið vanmentinn. Í febrúar síðastliðnum tilkynnti Fogh Rasmussen að allir danskir hermenn yrðu komnir heim í ágúst. Þegar mest var var rúmlega 400 manna dansk herlið í Írak undir stjórn Breta norður af Basra. Sjö danskir hermenn hafa fallið í Írak og nokkrir særst misalvarlega. Orð danska forsætisráðherrans nú eru afgerandi hvað varðar undirbúning og framkvæmd hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra. Íslensk stjórnvöld, sem studdu innrásina, hafa ekki gengið jafn langt. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var þó stríðsreksturinn í Írak harmaður en það ekki skýrt nánar.
Erlent Fréttir Mest lesið Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Innlent Frans páfi er látinn Erlent Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Erlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Innlent Fleiri fréttir Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Frans páfi er látinn Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður „Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Sjá meira