Netleitarrisinn Google hefur afhjúpað nýtt forrit sem hann vonar að muni knýja fjölda farsíma í framtíðinni og auka notkun netsins í farsímum til mikilla muna. Forritið gæti leitt til að ódýrari farsímar verði framleiddir þar sem það er hannað til að hraða ferli netsins í gsm símum.
Fyrirtækið vinnur með fjórum framleiðendum farsíma, Samsung, HTC, Motorola og LG. Ekki hefur verið tilkynnt um sérstakan Google síma.
Fyrstu símarnir sem nýta nýta forritið fara á markað á öðrum ársfjórðungi 2008.
„Þetta mun færa internetið í farsíma á mjög svalan hátt," segir Andy Rubin einn forstjóra Google. Fyrirtæki hans, Android, var keypt af Google árið 2005 og á heiðurinn af frumhönnun forritsins.
Google hefur stofnað the Open Handset Alliance sem samanstendur af 34 fyrirtækjum, þar á meðal örflöguframleiðslufyrirtæki og framleiðendum farsíma. Framtakið ögrar Microsoft og öðrum sem eru leiðandi í farsímalausnum.
Google forritinu verður komið fyrir í símum notendum að kostnaðarlausu og gæti orðið til verðstríðs á milli farsímafyrirtækja, og hugsanlega verðlækkunar á farsímum.
China Mobile, Telefonica á Spáni og Telecom á Ítalíu eru meðal fyrirtækja sem hafa skrifað undir að bjóða þjónustuna utan Bandaríkjanna.
„Nýungin mun leysa úr læðingi nýja tækni fyrir milljarða farsímanotenda í heiminum," segir Eric Schmidt framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Google.
Rene Oberman framkvæmdastjóri Deutsche Telekom segir Android forritið muni bjoða betri internetþjónustu fyrir farsímanotendur.
„Þetta verður langvinn barátta um hver verður ofan á í stríðinu um internetið í farsímum."