Fyrsti ráspóll Force India og Fisichella 29. ágúst 2009 13:16 Force India náði ráspól í fyrsta skipti fremsta stað á ráslínu í dag.
Giancarlo Fisichella hjá Force India náði að landa fremsta stað á ráslínu á Spa brautinni í Belgíu í dag. Liðið er í eigu indverska milljarðamæringsins Vijay Mallay og um sannkölluð tímamót að ræða hjá liðinu sem notar Mercedes vélar. "Ég átti alls ekki vona á að ná þessum árangri í tímatökunni og er eiginlega orðlaus, en menn hafa lagt hart að sér og þetta er uppskeran", sagði Fisichella sem er ítalskur. Mikið hefur verið skrafað um að hann taki jafnvel sæti Luca Badoer hjá Ferrari í næsta móti, en hann segir hug sinn hjá Force India þar til annað komi í ljós. Þá er hann samningslaus fyrir næsta ár, eins og þrír fremstu menn í tímatökunni. Jarno Trulli varð annar á Toyota og Nick Heidfeld á BMW, sem er að hætta í Formúlu 1. Rubens Barrochello á Brawn var fremstur þeirra sem keppa um meistaratitilinn, en Sebastian Vettel varð áttundi, Mark Webber níundi og forystumaður stigamótsins, Jenson Button er aðeins fjórtándi á ráslínu. Bein útsending frá kappaksttrinum hefst kl. 11:30 á siunnudag á Stöð 2 Sport. Sjá brautarlýsingu og aksturstíma ökumanna
Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Fleiri fréttir Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira