Þjóðverjinn Timo Glock mun ekki keppa í Suzuka kappakstrinum í nótt, vegna meiðsla sem hann hlaut í tímatökum í dag. FIA hefur bannað þátttöku hans þar sem hann tognaði ´ði baki og þurfti að sauma sár á fæti hans.
Þá fær Toyota ekki að nýta krafta varaökumannsins japanska Kobyashi þar sem hann hafði ekki ekið á æfingu í dag, eins og reglur segja til um. Hann fékk ekki undanþágu hjá FIA.
Glock fór útaf á mikilli ferð og virtist stýrið ekki virka sem skyldi, en hann skall harkalega á varnarvegg og var fluttur með þyrlu á spítala.
Bretinn Jenson Button getur tryggt sér meistaratitilinn með góðum árangri, en hann verður að fá 5 stigum meira en Rubens Barrichello. Þeir ræsa af stað í tíunda og ellefta sæti, en fremstur er Sebastian Vettel sem á möguleika á titlinum líka, en tölfræðilega mun minni nema fyrrnefndu kapparnir gangi illa.
Bein útsending er frá japanska kappakstrinum á Stöð 2 Sport kl. 04.30 í nótt á Stöð 2 Sport, en hann er endursýndur á sunnudagsmorgun.
Sjá brautarlýsingu og tölfræði