Ástralinn Mark Webber á Red Bull vann fimmta Formúlu 1 kappakstur ársins, sem fór fram á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Hann leiddi mótið frá upphafi til enda, en Lewis Hamilton á McLaren féll úr leik þegar hvellsprakk á bíl hans í næst síðasta hring.
Hann var þá í öðru sæti, en í stað hans steig heimamaðurinn Fernando Alonso á verðlaunapallinn í öðru sæti og Sebastian Vettel því þriðja.
Webber leiddi mótið frá upphafi til enda eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum í gær. Vettel reyndi að ógna honum í upphafi, en varð ekkert ágengt. Hamilton náði að síga framúr Vettel í keppninni eftir að hafa ræst þriðji af stað, en varð svo fyrir óhappinu í lokin.
Mikill og skemmtilegur slagur var oft í brautinni á milli Jenson Button og Michael Schumacher og hafði Schumacher betur, eftir nokkrar snarpar atlögur Buttons að honum, en Schumacher leiddi hann eftir brautinni. Button er með forystu í stigamótinu með 70 stig, eftir mótið í Barcelona, Alonso er með 67 og Vettel 60. Sjá nánar hér fyrir neðan:
Lokastaðan
1. Webber Red Bull-Renault 1h35:44.101
2. Alonso Ferrari + 24.065
3. Vettel Red Bull-Renault + 51.338
4. Schumacher Mercedes + 1:02.195
5. Button McLaren-Mercedes + 1:03.728
6. Massa Ferrari + 1:05.767
7. Sutil Force India-Mercedes + 1:12.941
8. Kubica Renault + 1:13.677
9. Barrichello Williams-Cosworth
10. Alguersuari Toro Rosso-Ferrari
Stigastaðan
1. Button 70 1. McLaren-Mercedes 119
2. Alonso 67 2. Ferrari 116
3. Vettel 60 3. Red Bull-Renault 113
4. Webber 53 4. Mercedes 72
5. Rosberg 50 5. Renault 50
6. Massa 49 6. Force India-Mercedes 24
7. Hamilton 49 7. Williams-Cosworth 8
8. Kubica 44 8. Toro Rosso-Ferrari 3