Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. mars 2011 11:34
David Cameron, forsætisráðherra Breta, Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, eru í þann mund að hittast til að ræða stöðuna í Líbíu. Síðar í dag munu þau svo hitta leiðtoga fleiri Evrópuríkja og Arabaríkja til að ræða hernaðaraðgerðir. Þær eru hrikalegar myndirnar sem sýna þegar herþota er skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt. Vélin var á vegum uppreisnarmanna og talið er að það hafi verið hersveitir Gaddafis sem skutu vélina niður. Á fundinum í dag verður rætt hvernig framfylgja á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna varðandi Líbýu. Þrátt fyrir yfirlýsingar Gaddafis stjórnarinnar um vopnahlé þrengja hersveitir hans að íbúum borgarinnar Benghazi sem uppreisnarmenn hafa enn á valdi sínu. Barack Obama forseti Bandaríkjanna segir að Gaddafi verði að verða við öllum skilyrðum Sameinuðu þjóðanna, hætta árásum á almenning, koma vatni og rafmagni aftur á í Benghazi og hleypa alþjóðlegum hjálparsamtökum til landsins til að sinna fólki í neyð. Líklegt er að á leiðtogafundinum í París verði teknar ákvarðanir um fyrstu hernaðaraðgerðir gegnd Gaddafi stjórninni og er jafnvel búist við að þær hefjist á næstu klukkustundum.
Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Jón undir feldi eins og Diljá Innlent Fleiri fréttir Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Sjá meira