

Viðurkennum Palestínu strax
Ég átti viðræður við aldinn og virtan skurðlækni á Gaza, Mustafa Abdul Shafi, í desember í fyrra stuttu áður en hann lést. Dr. Mustafa hafði verið í tengslum við kommúnista á sínum tíma, en þeir voru eini stjórnmálahópurinn meðal Palestínumanna sem samþykkti skiptinguna. Hvers vegna? Við töldum að ef við samþykktum ekki að gyðingar fengju helming landsins tækju þeir miklu meira. Reynslan hefur heldur betur sýnt að dr. Mustafa og skoðanabræður hans höfðu rétt fyrir sér. Gyðingar hafa fyrir löngu lagt alla Palestínu undir sig. Það gerðu þeir í tveimur áföngum. Fyrst í stríðinu frá 1948-49 er þeir náðu um það bil helmingi af þeim hluta sem Palestínumönnum var ætlaður og afganginn, það er 22% sem eftir var, tóku þeir í Sex daga stríðinu 1967.
Ísraelsríki var stofnað í maí 1948, þegar Bretar afsöluðu sér sínu hlutverki sem nýlenduþjóð, en Palestínumenn voru ekki reiðubúnir að stofna ríki þá, hvorki gátu né vildu.
Nú, eftir 63 ára hernám og landflótta stórs hluta þjóðarinnar og 44 ára hernám allrar Palestínu, eru Palestínumenn reiðubúnir að stofna sjálfstætt og fullvalda ríki á þeim fimmtungi Palestínu sem tekinn var af þeim í júní 1967. Þeir krefjast ekki einu sinni þess tæpa helmings landsins sem SÞ höfðu ætlað þeim 1947, hvað þá heldur alls landsins. Þessa miklu og sögulegu eftirgjöf sannfærði Yasser Arafat þjóðina um að væri nauðsynleg og í dag hafa öll stjórnmálaöfl í Palestínu sæst á hana með einum eða öðrum hætti, þar á meðal Hamas-samtökin sem styðja stofnun Palestínuríkis innan landamæranna frá 1967.
Það gerir Ísraelsstjórn hins vegar ekki. Ísraelsríki hefur aldrei verið reiðubúið að skilgreina nein landamæri fyrir sig. Það er fátt sem bendir til þess að nokkur leiðtogi Ísraelsríkis hafi ætlað sér að skila einum einasta landskika sem tekinn hefur verið. Til þess benda landtökubyggðirnar sem allir flokkar hafa staðið að. Undantekningin er ef til vill Yitshak Rabin forsætisráðherra sem var myrtur af eigin mönnum, fyrir sinn friðarvilja.
Palestínska þjóðin er herlaus og hefur ekki haft tök á að verjast grimmilegum árásum Ísraelshers sem íbúar herteknu svæðanna hafa endalaust mátt þola. Þar á í hlut eitt öflugasta herveldi heims gegn varnarlausum íbúum.
Aðskilnaðarmúr, samgönguhindranir, loftárásir, eyðilegging á möguleikum til sjálfsbjargar, hvort sem er við ávaxtarækt, landbúnað, fiskveiðar eða iðnað, þá er fátt eitt talið sem hernámið hefur haft í för með sér.
Það er löngu komið nóg. Umheimurinn getur ekki endalaust horft upp á þessa miskunnarlausu kúgun einnar þjóðar á annarri. Viðurkenning Palestínu sem sjálfstæðs og fullvalda ríkis er fyrsta skrefið til að binda enda á hernámið og koma á réttlátum friði.
Þrátt fyrir hinn mikla stuðning sem palestínska þjóðin nýtur meðal Sameinuðu þjóðanna getur Bandaríkjastjórn beitt neitunarvaldi gegn fullri aðild Palestínu sem sjálfstæðs ríkis. Það er þá í 42. skiptið sem Bandaríkin beita valdi sínu gegn rétti palestínsku þjóðarinnar. Skömm Bandaríkjastjórnar er því meiri sem Obama Bandaríkjaforseti lýsti því yfir fyrir réttu ári að aðild Palestínu að SÞ yrði fagnað nú, að liðnu ári. Ráðamenn í Ísrael hafa haft það í flimtingum að þeir hafi neitunarvald í Öryggisráðinu. Það sýnir sig nú. Þessi valdbeiting Bandaríkjastjórnar er í samræmi við fyrri stefnu og hvernig Bandaríkin hafa staðið undir stríðsrekstri Ísraels, hernámi þess og kúgun gagnvart nágrönnum, árum og áratugum saman.
Ísland hafði á sínum tíma visst frumkvæði með höndum á vettvangi SÞ þegar tillagan um skiptingu Palestínu var samþykkt. Það færi vel á því að Ísland axlaði ábyrgð sína og sýndi frumkvæði nú. Ísland getur enn orðið fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Það þarf að gerast strax.
Skoðun

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar