
Grettistaki lyft í jöfnun skattbyrða
Núna, tveimur árum eftir að Jóhanna og Steingrímur hófu að breyta skattkerfinu, er hægt að mæla árangurinn. Niðurstaðan er sú, að á einungis tveimur árum hefur tekist að færa yfir á hin breiðari bök samfélagsins verulegar skattbyrðar af millistéttinni og láglaunafólki, sem sannarlega liðu fyrir gömlu skattastefnuna. Það er sögulegur árangur á svo skömmum tíma.
Árangursríkar jöfnunaraðgerðirJóhanna og Steingrímur slógu nýjan tón strax sumarið 2009 þegar þau birtu „Áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum“. Þar var lýst með skýrum hætti leiðum til að mæta tekjufalli ríkissjóðs og hnitmiðuðum aðgerðum til að vinda ofan af ranglátri skattastefnu. Aðall hinnar nýju stefnu sem byggð var á norræna módelinu var félagslegt öryggi, jafnræði og sanngjörn dreifing skattbyrða. Þó allt innan marka hóflegra skattahækkana, sem óhjákvæmilegar voru til að mæta gríðarlegum herkostnaði við hrunið.
Jóhanna og Steingrímur lýstu yfir að þessum markmiðum yrði einkum náð með þriggja þrepa skattkerfi, hækkun á fjármagnstekjuskatti með frítekjumarki fyrir lágar vaxtatekjur, og auðlegðarskatti á mestu eignir. Stjórnarandstaðan heldur því fram í síbylju að norræna velferðarstjórnin okkar hafi reynst sama ójafnaðarstjórn og hinar fyrri. Því fer fjarri. Nú höfum við loksins gögn sem sýna að ný skattastefna ríkisstjórnarinnar flytur verulegar byrðar af sköttum frá lágtekjufólki og millistéttinni yfir á þá ríkustu í samfélaginu sem hafa sterkari bök.
Þetta má sjá svart á hvítu í tölum sem fjármálaráðherra hefur látið vinna um þróun skattbyrði hjóna og sambúðarfólks. Þau eru byggð á tölulegum upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra um álagningu skatta á miðju þessu ári á tekjur ársins 2010 og á eignir í lok þess. Þá voru ofangreindar skattaaðgerðir komnar til framkvæmda og því unnt að mæla árangurinn.
Millistétt og lágtekjufólk njótaNiðurstaða mælingarinnar er mjög skýr. Í anda norræna módelsins hefur verulegur tilflutningur á skattbyrði átt sér stað frá fólki með lægri tekjur yfir á hátekjufólk:
1. Helmingur hjóna, ca. 31.000 hjón, greiðir nú lægra hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatta þ.m.t. fjármagnstekjuskatt en þau gerðu árið 2008. Að hækkun bóta meðtalinni er fjöldi þeirra sem greiða lægra hlutfall í skatt um 37.000.
2. 65% hjóna greiða engan eða innan við 1% fjármagnstekjuskatt og 77% hjóna greiða nú lægri fjármagnstekjuskatt en þau hefðu gert skv. 10% flötum skatti, sem áður var.
3. Auðlegðarskattur er að jafnaði um 0,8% heildartekna hjóna. 75% skattsins greiða 15% tekjuhæstu hjónin og yfir 50% auðlegðarskatts eru greidd af þeim efstu tveimur prósentunum í samfélaginu sem hæstar tekjur hafa.
4. Vegna breytts fjármagnstekjuskatts og auðlegðarskatts er skatthlutfall í efsta hluta tekjuskalans ekki lengur lægra en í neðri hlutum hans svo sem áður var. Breiðu bökin bera meira.
5. Skatthlutföll, einnig að auðlegðarskatti meðtöldum, voru á árinu 2010 í öllum tekjubilum neðri hluta tekjuskalans lægri en þau voru á árinu 2008. Þeir sem hafa minna úr að spila, greiða nú lægri skatta en í loftbólugóðærinu.
Sögulegur árangur ríkisstjórnarSamkvæmt þessum sögulegu tölum er ljóst að í fjármálaráðherratíð Steingríms undir öruggri stjórnarforystu Jóhönnu er búið að innleiða norræna módelið svo um munar í skattkerfi Íslendinga. Á aðeins tveimur árum hefur tekist að flytja þungar skattbyrðar af fólki í millistétt og lágtekjufólki yfir á þá sem hafa fjárhagslegan hrygg til að bera þyngri byrðar. Hátekjufólkið og stóreignaliðið á ekki að njóta skjóls af ranglátri ójafnaðarstefnu skattkerfis Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Það á að leggja sinn réttláta skerf til uppbyggingar samfélagsins eins og aðrir þegnar. Þetta er þróunin víða um lönd þar sem þeir sem meira mega sín hafa stigið fram og beinlínis spurt af hverju þeir njóti sérstakra skattfríðinda, sbr. fræg ummæli auðmannsins Warrens Buffet í Bandaríkjunum.
Undir forystu Jóhönnu og Steingríms hefur skattkerfið verið notað eins og áveita til að dreifa og jafna tekjum samfélagsins til þeirra sem þurfa, frá þeim sem hafa meira en nóg. Þetta er norræna módelið. Þetta er íslensk jafnaðarstefna. Þessi árangur í jöfnun gegnum skattkerfið er ótvíræður sigur fyrir jafnaðarstefnu núverandi ríkisstjórnar.
Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna.
Skoðun

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar