

Græðgi frjálshyggjunnar áfram
Samfylkingin og Vinstri grænir sögðust ætla að úthluta nýtingarréttinum á jafnræðisgrundvelli til hóflegs tíma gegn fullu gjaldi. Þeir sögðu báðir að kvótakerfið stæðist ekki jafnræðisreglu samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þeir sögðu báðir að núverandi kvótaúthlutun samræmdist ekki kröfunni um sanngjarnar og réttlátar leikreglur.
En nú ætla vinstri flokkarnir að úthluta áfram sömu mönnum 94% af kvótanum. Þeir ætla áfram að úthluta ótímabundið og þeir ætla áfram að afhenda réttinn fyrir brot af því verði sem kvótagreifarnir hafa sjálfir búið til og láta borga sér. Þeir ætla áfram að leyfa þessum fáu kvótahöfum að selja kvótann og hirða allar tekjurnar. Græðgin fær áfram sitt.
Árið 2007 var allur kvóti á Flateyri seldur burt. Seljandinn er 9. ríkasti maður landsins skv. tekjublaði Frjálsrar verslunar. Það verður áfram þannig að sjómenn og landverkafólk ráða engu um það hvað verður um kvótann. Áfram verður allur kvótinn óbundinn sjávarbyggðunum. Áfram verður engin samkeppni um veiðiheimildir og engin aðkoma fyrir nýja aðila á jafnræðisgrundvelli. Áfram verður fiskverð og ráðstöfun aflans einkamál kvótahafans. Áfram verður hægt að veðsetja kvótann og taka út framtíðartekjurnar. Áfram verður hugarfarið drekkum í dag og iðrumst á morgun. Áfram munu fáir græða mikið og margir tapa. Til þess að svikamyllan geti örugglega haldið áfram ætla vinstri flokkarnir í góðri samvinnu við gömlu kvótaflokkana að sjá til þess að þessu verði ekki breytt næstu 20 árin. Áfram verður ranglætið.
Skoðun

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar