Hafdís vann tvö gull á móti í Stokkhólmi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2013 15:45 Hafdís Sigurðardóttir. Mynd/Stefán
Hafdís Sigurðardóttir er í frábæru formi og hún sýndi það og sannaði með því að vinna tvö gull á frjálsíþróttamótinu Raka Spåret i Stokkhólmi. Hafdís bætti sinn besta tíma á árinu í báðum greinum, 400 metra hlaupi og langstökki. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands. Fjórir íslenskir keppendur tóku þátt í mótinu í Stokkhólmi en Fjóla Signý Hannesdóttir, Trausti Stefánsson og Stefanía Hákonardóttir voru einnig með. Fjóla Signý, Trausti og Stefanía eru öll búsett í Svíþjóð og stunda æfingar þar af kappi. Allir íslensku keppendurnir á mótinu kepptu í 400m hlaupi. Hafdís Sigurðardóttir vann 400 metra hlaupið á 55,89 sekúndum sem er besti tími hennar á ferlinum. Hún vann einnig langstökkið eftir spennandi keppni. Fyrir lokaumferðina var Hafdís í 2. sæti með 6,04 metra stökk og var aðeins einum sentímetra frá fyrsta sætinu. Hafdís tryggði sér sigurinn í lokastökki sínu þegar hún stökk 6,11 metra sem er hennar besta stökk á þessu ári. Hafdís keppti einnig í 60m hlaupi þar sem hún komst í úrslit og endaði í 5. sæti Fjóla Signý keppti í 60 metra og 400 metra hlaupi. Hún náði sér ekki á strik í 60 metrunum en vann sinn riðil í 400 metra hlaupinu og endaði í 3. sæti á tímanum 57,55 sekúndum sem er ekki langt frá hennar besta. Þetta var hennar fyrsta 400 metra hlaup á árinu líkt og hjá Trausta sem hljóp á 48,63 sekúndum og tryggði sér 2. sætið. Stefanía náði sér ekki á strik í 400 metra hlaupinu.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Metin sex sem Salah setti í gær Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sár Verstappen hótar sniðgöngu Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala Lýsandi fékk pökk í andlitið „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Dagskráin í dag: Lögmál leiksins og toppslagur í Championship-deildinni „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Sjá meira