True Blood-stjarnan Anna Paquin er sjóðheit í nýjasta tölublaði tímaritsins Manhattan. Er þetta fyrsta myndatakan sem Anna fer í síðan hún eignaðist tvíbura í september á síðasta ári.
Nýja serían af True Blood er frumsýnd á HBO í þessum mánuði en Anna er gift meðleikara sínum Stephen Moyer.



