RunKeeper
Á nýju ári strengja margir áramótaheit. Erfitt getur verið að halda þessi áramótaheit og drífa sig út að hlaupa ef engin hvatning er fyrir hendi nema aukakíló og slen. Þá er ráð að kynnast fjölmörgum æfinga- og hlaupaöppum fyrir snjallsíma.
Endalaust úrval er af þessum öppum en hér er aðeins tekið fyrir eitt og er það RunKeeper, sem skráir upplýsingar um æfinguna þína um leið og þú ferð út að hlaupa, hjóla eða ganga. Appið virkir GPS-staðsetningarkerfi símans og merkir hlaupaleiðina inn á kort, skráir hversu hratt þú hljópst hvern kílómetra og mælir jafnvel brenndar kaloríur. Hlustir þú á tónlist á meðan þú hleypur lætur hvetjandi rödd þig reglulega vita hversu langt þú hefur hlaupið og á hversu löngum tíma.
Appið er einfalt í notkun og krefst ekki neinna upplýsinga um þig nema tölvupóstfangs svo þú getir skráð þig inn sem notandi. Þú getur síðan stillt hverju þú deilir með öðrum notendum forritsins, sem telja meira en tólf milljónir manns um heim allan. Appið heldur síðan utan um allar æfingarnar þínar svo að hægt er að nálgast gömul hlaup og hlaupatíma aftur í tímann. Ef maður skráir sig síðan inn á vefsíðu RunKeeper má nálgast allar upplýsingar um hlaupin sín á vefnum. Einnig má skoða upplýsingar annarra notenda þar.
Nýlega kynnti framleiðandi forritsins nýjung í uppfærslu þar sem hægt er að setja sér markmið. Appið lætur þig svo vita hversu vel þér gengur að ná settum markmiðum. Einnig má nálgast í nýrri uppfærslu appsins nokkrar æfingaáætlanir sem settar hafa verið saman af reyndum þjálfurum. Þar er appið búið að gera æfingadagskrá fyrir þig, fyrir næstu vikur og mánuði. Það er tilvalið fyrir þá sem til dæmis dreymir um að hlaupa 10 kílómetra, hálfmaraþon eða maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst.
Fleiri álíka forrit má finna á verslunum snjallsímanna. Má þar nefna Endomondo, sem er einnig vinsælt meðal Íslendinga. Þar má til dæmis hlaupa eftir fyrir fram ákveðnum hlaupaleiðum sem notendur hafa skráð.
App vikunnar

Mest lesið

Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi
Viðskipti innlent

Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi
Viðskipti erlent

Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný
Viðskipti innlent


Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka
Viðskipti innlent

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent
