Massa væntir þess að vera í titilbaráttunni 2015

Massa varð annar í lokakeppni tímabilsins í Abú Dabí rétt á eftir heimsmeistaranum Lewis Hamilton. Williams bíllinn er að öllum líkindum annar hraðasti bíllinn eins og staðan er núna.
„Ég er ánægður með seinnihluta tímabilsins og afar spenntur fyrir næsta ári. Tímabilið byrjaði ekki eins og við vildum en við enduðum með afar samkeppnishæfan bíl,“ sagði Massa.
„Við getum gert enn betur á næsta ári, betri bíll og við munum koma til að berjast um sigra. Væntingarnar eru miklar. Reglurnar eru ekki að breytast mikið og því ættu sömu lið að vera með samkeppnishæfa bíla á næsta ári og voru í baráttunni í ár. En það er þó alltaf nýr bíll, nýtt ár,“ sagði hann að lokum.
Það verður ekki hlaupið að því að ná Mercedes á næsta ári eftir allt þá höfðu Mercedes bílarnir mikið forskot. Massa hefur trú á að metnaðar fullt starf á milli tímabila geti skilað miklu á næsta ári.
Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili
Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Bílskúrinn: Allskonar frá Abú Dabí
Helstu atvik helgarinnar verða til skoðunar i Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Pirelli breytti dekkjavali vegna ummæla Massa
Felipe Massa, ökumaður Williams liðsins í formúlu 1 sagði dekkjaval Pirelli fyrir brasilíska kappaksturinn "hættulegt, mjög hættulegt,“ og "óásættanlegt.“

Massa: Flott að enda framar en Ferrari
Felipe Massa kveðst vongóður að Williams liðið nái að skáka hans gamla liði Ferrari í stigakeppni bílasmiða. Hann segir að það væri mjög jákvætt fyrir Williams.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá
Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?

Felipe Massa á ráspól í Austurríki
Felipe Massa varð fyrstur til að stöðva ráspólaröð Mercedes liðsins. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas var annar og Nico Rosberg varð þriðji.