Aðrir vélaframleiðendur höfðu fengið leyfi til að þróa sína vél á komandi tímabili. Galli fannst í reglum þar sem það vantaði dagsetningu sem átti að binda enda á þróun véla fyrir tímabilið.
Honda er hins vegar að smíða fyrstu 1,6 lítra Formúlu 1 vélina sína. Þess vegna varð Honda að skila lokahönnun fyrir 28. febrúar næstkomandi líkt og aðrir gerðu þegar vélarnar voru fyrst smíðaðar í fyrra.
FIA (alþjóða akstursíþróttasambandið) hefur nú gefið eftir af sanngirnisástæðum og ætlar að leyfa Honda að þróa sínar vélar yfir tímabilið.
Honda mun þá hafa sömu tækifæri til að þróa sínar vélar og Ferrari, Mercedes og Renault.
Honda má eftir allt þróa sína vél

Tengdar fréttir

20 Formúlu 1 keppnir 2015
Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Ferrari, Red Bull og McLaren vilja frjálsa vélarhönnun
Vilja breyta vélum sínum fyrir næsta tímabil þar sem vél Mercedes hefur yfirburði.

Pirelli er tilbúið að breikka dekkin
Hugmyndir eru uppi um að gera afturdekkin á Formúlu 1 bílum breiðari. Pirelli segist vera reiðubúið að framleiða breiðari dekk.

Vélaþróun leyfileg 2015, fyrir suma
Gloppótt reglugerð gerir það að verkum að breytingabannið sem lék Ferrari og Renault grátt í lok síðasta tímabils verður ekki til staðar í ár.