Enn er von fyrir Manor Grand Prix

Skiptastjórn félagsins mun nú afhenda stjórn þess aftur yfirráð yfir fjárhag þess, á allra næstu dögum. Skiptastjórinn, Geoff Rowley segir þetta mjög mikilvægt skref í átt til þátttöku liðsins á tímabilinu sem hefst eftir 23 daga í Ástralíu.
Manor gæti þó enn átt eftir að yfirstíga nokkrar hindranir áður en það mætir til leiks í Melbourne. Skipulagshópur Formúlu 1 greiddi atkvæði gegn því að Manor fengi að nota 2014 bíl Marussia.
Liðið ætlar þó ekki að láta það stöðva sig og vinnur nú hörðum höndum að því að setja saman nýjan löglegan bíl sem liðið mætti þá nota.
Vonandi tekst Manor að koma dekkjum undir bíl og mæta til keppni. Það væri synd að sjá á eftir liðinu eftir að það náði í sín fyrstu stig í fyrra og hefur barist fyrir tilvist sinni af slíkri hörku undanfarna mánuði.
Tengdar fréttir

Marussia bjargað á elleftu stundu?
Tekist hefur að blása lífi í vonarglæður yfirmanna Marussia liðsins um að það takist að bjarga liðini. Hætt hefur verið við loka uppboð á eignum liðsins.

Bílkskúrinn: Stútfullur af nýjum bílum
Nýju bílarnir eru til skoðunar hér í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Litlu liðin biðja um hjálp í bréfi sem var lekið
Bréf frá aðstoðarliðsstjóra Force India, Bob Fernley til Bernie Ecclestone eiganda sjónvarpsréttar af Formúlu 1 hefur verið lekið.

Bræður vilja bjarga Marussia
Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Upplýsingum um skuldir Marussia liðsins lekið
Marussia liðið skuldaði lánadrottnum andvirði rúmlega 6 milljarða króna samkvæmt skjölunum þegar það var lýst gjaldþrota. Upplýsingar um skuldir liðsins voru á skjölum sem lekið var úr þrotabúinu.

Marussia missir af næstu keppni
Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.

Vergne: Betra að vera þróunarökumaður Ferrari en að keppa fyrir lítið lið
Jean-Eric Vergne segist glaður með þróunarökumannshlutverkið hjá Ferrari. Hann var látinn fara frá Toro Rosso eftir tímabilið 2014.