Valtteri Bottas á Williams átti hraðasta tíma gærdagsins, sem var síðasti æfingadagurinn fyrir komandi tímabil.
Finnski ökumaðurinn notaði ofurmjúk dekk til að aka hringinn á Katalóníubrautinni á 1:23,063. Hann ók 88 hringi.
Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel var fjórum tíundu úr sekúndu á eftir Bottas en ók 129 hringi. Nýliðinn Felipe Nasr varð þriðji rétt tæpri sekúndu hægari en Bottas, Nasr ók lengst allra í dag, 159 hringi.
Sergio Perez fékk loksins að prófa nýja Force India bílinn sem virðist ansi áreiðanlegur. Bara ef hann hefði almennilegan hraða, það gæti þó enn komið. Þriðji dagurinn síðan bíllinn var tekinn nýr úr kassanum og hann fór 130 hringi í gær, sem verður að teljast mjög gott. Perez varð sjötti, rétt rúmum tveimur sekúndum á eftir Bottas.
Bottas hraðastur á lokadegi æfinga

Tengdar fréttir

Árekstur Alonso vindinum að kenna
Fernando Alonso lenti í harkalegu samstuði við varnarvegg á loka degi annarrar æfingalotu fyrir komandi tímabil.

Mercedes áfram fljótastir
Heimsmeistarinn Lewis Hamilton hélt Mercedes liðinu á toppnum í loka æfingalotunni fyrir komandi tímabil.

Massa fljótastur og McLaren í vandræðum
Felipe Massa á Williams varð fljótasti maður dagsins. Þriðja og síðasta æfingalotan fyrir Formúlu 1 tímabilið hófst á Katalóníubrautinni í dag.

Manor tilkynna fyrri ökumann sinn
Manor GP liðið hefur staðfest að það ætli sér að taka þátt í Ástralíu eftir 17 daga. Will Stevens veðrur annar ökumanna liðsins.

Mercedes sýnir mátt sinn
Nico Rosberg á Mercedes sýndi hvað býr í bílnum á öðrum degi síðustu æfingalotunnar. Hann setti gríðarlega góðan tíma á Katalóníubrautinni.