Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingunni en ekki munaði miklu, Hamilton var 0,029 sekúndum á eftir liðsfélaga sínum.
Valtteri Bottas á Williams komst næst Mercedes. Hann var þó rúmri sekúndu á eftir. Nýliðinn Carlos Sainz Jr. á Toro Rosso varð þriðji næstum einni og hálfri sekúndu á eftir Hamilton.
Jenson Button og Kevin Magnussen á McLaren komust aðeis 6 og 7 hringi áður en vélar biluðu í bílum þeirra.
Sauber og Manor Marussia tóku ekki þátt í æfingunni. Manor glímdi við tæknileg vandamál en Sauber lögfræðileg.

Sebastian Vettel komst næst Mercedes, 0,715 sekúndum á eftir Rosberg. Kimi Raikkonen var fjórði rúmri sekúndu á eftir Rosberg.
Vatnsleki kom í veg fyrir að Felipe Massa setti tíma. Tæknileg vandamál Manor liðsins hélt því í bílskúrnum.
Marcus Ericsson og Felipe Nasr á Sauber fengu að yfirgefa bílskúrinn eftir fortölur lögfræðinga Giedo van der Garde.
Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport sem hefst klukkan 5:50 í fyrramálið. Bein útsending frá fyrstu keppni tímabilsins hefst klukkan 4:30 á sunnudagsmorgun einnig á Stöð 2 Sport.
Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt kort af Albert Park brautinni í Melbourne.