Keppnin var spennandi og mikið að gerast á brautinni. Hernaðaráætlun Ferrari gekk upp og skilaði frábærum árangri í dag. Kimi Raikkonen ræsti 11. og lenti í síðasta sæti eftir árekstur í upphafi en stóð sig vel í a vinna sig í gegnum þvöguna.
Pastor Maldonado á Lotus og Raikkonen sprengdu báðir dekk á fyrstu hringjum keppninnar eftir snertingu frá öðrum ökumönnum.
Marcus Ericsson snérist í fyrstu beygju brautarinnra á þriðja hring. Öryggisbíllinn kom út og þétti hópinn. Margir nýttu tækifærið og skiptu um dekk. Vettel gerði það ekki öfugt við Mercedes menn. Vettel leiddi því keppnina.
Hamilton náði öðru sæti aftur á hring 11. Hann var þá 10 sekúndum á eftir Vettel.
Vettel tók þjónustuhlé á hring 18 og kom út á brautina aftur í þriðja sæti á eftir Mercedes mönnum með Hamilton fremstan.
Vettel var fljótur að nálgast Rosberg og var kominn fram úr á hring 22.

„Góður strákur, góður strákur Hamilton er 5 sekúndum fyrir framan og er að tæta dekkin upp líka,“ sagði verkfræðingur Vettel í talstöðinni.
„Afturdekkinn eru að missa grip,“ sagði Hamilton í talstöðinni nánast til að staðfesta grun Ferrari um að dekkin væru að missa gripið.
Vettel komst fram úr Hamilton sem fór svo beint inn á þjónustusvæðið.
Seinna þjónustuhlé Vettel tókst ágætlega og hann kom út á milli Hamilton og Rosberg. Hamilton kvartaði svo í talstöðinni yfir dekkjunum sínum og kom inn á næsta hring. Vettel var þá komin í forystu aftur.
„Við stefnum á að ná Vettel þegar það eru fimm hringir eftir,“ sagði verkfræðingur Hamilton við hann í talstöðinni. „Ekki tala við mig í beygjum maður, ég fór næstum því útaf,“ svaraði Hamilton.
Ferrari vann síðast keppni á Spáni árið 2013 þá var það Fernando Alonso sem kom fyrstur í mark. Sebastian Vettel vann síðast í Brasilíu sama ár.