„Frábært að ná ráspól og liðið stóð sig svo vel. Það small allt saman,“ sagði maðurinn á ráspól, Lewis Hamilton.
„Þokkalega sáttur, það er aldrei að vita hvað gerist hérna. Horfðu bara út veðrið er óútreiknanlegt,“ sagði Sebastian Vettel sem komst upp á milli Mercedes mannanna.
„Ég ók bara ekki nógu vel í dag. Þriðja sætið er ekki gott fyrir morgundaginn. Það er þó á hreini hluta brautrinnar svo kannski er það ekki svo slæmt,“ sagði Nico Rosberg.
„Þegar maður stígur út úr bílnum er og er 17. er maður auðvitað vonsvikinn.Við virðumst samkeppnishæfari þegar meira af eldsneyti er um borð. Við ættum að geta gert betur á morgun,“ sagði Jenson Button
„Við sjáum framfarir frá því í Ástralíu, ef við sjáum bætingu upp á eina og hálfa sekúndu í hverri keppni verðum við komnir á pól eftir þrjár til fjórar keppnir,“ sagði Fernando Alonso eftir að tímatöku McLaren lauk.
„Við erum bjartsýn og vitum að ef þú vilt vinna Mercedes þarftu að gera eitthvað öðruvísi og taka áhættu. Liðið er fullt af hæfileikaríku fólki og mikið af nýju fólki að koma inn frá Japan. Við munum halda áfram að ná framförum,“ bætti Alonso við næstum óeðlilega kátur í bragði.
„Ég held að við séum á þeim stað sem bíllinn er í 14. sæti. Vonandi getum við náð í stig á morgun,“ sagði Sergio Perez á Force India.
„Ekki mikið sem ég gat gert í þessu. Það er alltaf hægt að lenda í vandræðum í fyrstu beygjum en við verum bara að sjá,“ sagði Kimi Raikkonen sem var ekki eins kátur og McLaren mennirnir.
„Við sýndum framfarir í dag en ég var seinn út á brautina þegar rigningin kom og tapaði á því. Markmiðið er að ná í stig á morgun,“ sagði Pastor Maldonado á Lotus.