Algjör martraðaræfing hjá Valsmönnum á mánudaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2015 08:30 Elvar Friðriksson og Geir Guðmundsson hafa verið á meiðslalista Valsmanna. Vísir/Ernir
Valsmenn eru með þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildar karla í handbolta eftir 25-23 sigur á Haukum í gær en staðan er eins góð á leikmannamálum félagsins. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsliðsins, segir frá því í viðtali í Morgunblaðið í morgun að sjö leikmenn Valsliðsins glími nú við meiðsli. Alvarlegustu meiðslin eru hjá hinum öfluga Guðmundi Hólmari Helgasyni sem þurfti að fara segulómskoðun á kálfa. Hinir sem glíma við meiðsli eru Geir Guðmundsson, Alexander Júlíusson, Stephen Nielsen, Vignir Stefánsson, Elvar Friðriksson og Orri Freyr Gíslason. Elvar og Orri spiluðu þó leikinn í gær. Æfing liðsins á mánudaginn var algjör óhappaæfing en þá meiddust þrír leikmenn liðsins eða þeir Guðmundur Hólmar, Geir Guðmundsson (á læri) og Vignir Stefánsson (fingur). „Þetta hefur verið svolítið furðuleg vika og erfitt að undirbúa liðið fyrir leikinn. Þessi mánudagsæfing var ein sú svakalegasta sem við höfum lent í. Sjúkralistinn sem lengdist á þeirri æfingu var orðinn ansi langur," sagði Óskar Bjarni við Morgunblaðið. Óskar Bjarni er bjartsýnn á það að allir hans menn verði orðnir leikfærir í úrslitakeppninni sem hefst 7. apríl næstkomandi.
Olís-deild karla Mest lesið Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Fær vonandi stórbrotinn endi á stórbrotnum ferli“ Sport Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Sjá meira