Bjarni: Verið að ráðast á okkar bestu leikmenn Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. júní 2015 21:55 Bjarni var ekki sáttur. vísir/stefán
Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, var eðlilega svekktur með úrslitin á Vodafone-vellinum í kvöld enda sigurhrina hans manna á enda. Valur vann 3-0 sigur á KR. "Við urðum einfaldlega undir í baráttunni. Það sem fylgir svo þar á eftir er, að sendingar verða lélegar, fyrsta snerting er léleg og við sköpum okkur fá færi," sagði Bjarni. "Allt er þetta undanfari þess að við verðum undir Valsliðinu í baráttunni og því fór sem fór." Valsmenn voru mjög harðir frá fyrstu mínútu og straujuðu Pálma Rafn Pálmason niður eftir aðeins 30 sekúndur. "Þetta er það sem lið eru farin að gera. Þau ráðast á okkar bestu leikmenn og ætla að taka þá út úr leiknum," sagði Bjarni. "Við höfum lent í þessu í síðustu leikjum. Þetta er ekki skemmtileg taktík og eitthvað sem dómarar þurfa að hugsa um ef þetta er leiðin að komast í gegnum okkur." "En við verðum bara að taka á móti þessu. Það þýðir ekkert að grenja yfir þessu. Við verðum að vera ofan á í baráttunni ef við ætlum að vinna leiki." KR-liðið skapaði sér ekki mikið í leiknum sem Bjarni var óánægður með enda liðið mikið með boltann. "Við vildum fá fleiri fyrirgjafir og betri. Við fjölguðum í framherjastöðunum en Valsliðið er hörkugott og spilaði sterkan varnarleik með Danann fyrir miðju sem bindur þetta saman. Hingað er ekkert létt að koma og við vissum það fyrir leikinn," sagði Bjarni Guðjónsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira