Rosberg og Vettel fljótastir á æfingum

Vettel var í vandræðum á fyrri æfingunni, bíll hans bilaði og hann endaði hægastur á æfingunni.
Lewis Hamilton á Mercedes varð annar þremur tíundu á eftir Rosberg og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji. Valtteri Bottas á Williams varð fjórði og Felipe Nasr á Sauber varð fimmti.
Seinni æfingin byrjaði betur hjá Vettel og hann varð fljótastur. Önnur bilun gerði þó vart við sig í bíl Þjóðverjans og hann hélt sig í bílskúrnum seinni hluta æfingarinnar.
Rosberg var rétt á eftir Vettel á seinni æfingunni, einungis 11 þúsundustu á eftir. Þjóðverjarnir kunna greinilega vel við sig í Austurríki.
Raikkonen bakkaði upp frammistöðu Vettel með því að verða þriðji aðeins tveimur tíundu á eftir Vettel.
Tímatakan verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 11:50 á morgun. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á sunnudag einnig á Stöð 2 Sport.
Tengdar fréttir

Button: Vonandi verður Alonso fljótari en ég
Jenson Button ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag að hann vonaði að liðsfélagi sinn, Fernando Alonso yrði fljótari en hann um helgina.

Manor hugsanlega hætt við
Manor liðið í Formúlu 1 endurhugsar nú áætlun sína um að kynna nýjan bíl á tímabilinu. Hugsanlega verður hann ekki kynntur fyrr en á næsta tímabili.

Lewis Hamilton fyrstur í mark í Kanada
Lewis Hamitlon á Mercedes vann í Kanada, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Það var sama hvað Rosberg reyndi, Hamilton átti alltaf svar.

Wolff: Við erum ekki alltaf hálfvitar
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark, Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Bottas var jafnframt fyrsti ökumaðurinn sem kemst á verðlaunapall í ár sem ekur ekki fyrir Mercedes eða Ferrari. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Bílskúrinn: Endurkoman í Kanada
Lewis Hamilton kom til baka eftir vonbrigðin í Kanada, Nico Rosberg glímdi við bremsuvandamál og Valtteri Bottas komst á verðlaunapall.

Massa: Mikilvægt að setja pressu á Ferrari
Felipe Massa annar ökumanna Williams liðsins í Formúlu 1 segir að það sé mikilvægt fyrir liðið að setja pressu á Ferrari í nánustu framtíð.