Romain Grosjean verður kynntur sem annar ökumanna Haas F1 liðsins á þriðjudaginn. Ákvörðun franska ökumannsins kom liði hans, Lotus á óvart, sagði Federico Gastaldi vara liðsstjóri Lotus.
„Við bjuggumst ekki við því að Romain myndi yfirgefa okkur en þetta er hans líf. Hann má gera það sem hann vill, hann er frjáls,“ sagði Gastaldi.
Grosjean hefur verið hjá Lotus síðan 2009 þegar Renault átti liðið, hann tók svo tveggja ára pásu og kom svo aftur til liðsins 2012 og náði þrisvar á verðlaunapall það ár.
Gastaldi sagði að hann hefði einungis verið látin vita af ákvörðun Grosjean í síðustu viku. Hann segir að nú verði farið í að finna nýjan ökumann til að aka við hlið Pastor Maldonado, sem þegar hefur skrifað undir framlenginu hjá liðinu.
„Persónulega finnst mér leiðinlegt að sjá Romain fara, ég er viss um að öllu liðinu líður eins. Hann hefur verið hjá okkur í sjö ár og er hluti af fjölskyldunni,“ bætti Gastaldi við.
Jolyon Palmer hefur verið orðaður við sæti Grosjean. Palmer hefur verið varaökumaður liðsins. Gastaldi svaraði „af hverju ekki“ þegar hann var spurður hvort Palmer fengi sæti. Hann sagði þó að ákvörðunin verði tekin af stjórn Lotus.
