Illugi starfaði fyrir Orku Energy sem ráðgjafi meðan hann var í leyfi frá þingstörfum eftir bankahrunið og hafa vinnuferðir hans til Kína með fulltúum fyrirtækisins eftir að hann tók við embætti ráðherra vakið athygli.
Aðspurður um hvort hann hafi farið í fleiri sambærilegar utanlandsferðir í ráðherratíð sinni til að greiða götur íslenskra orkufyrirtækja eða annarra segir hann svo ekki vera.
„Komi til fleiri slíkra ferða til annarra landa, verður leitast við að aðstoða íslensk fyrirtæki sem þar starfa eftir föngum, sérstaklega þau sem starfa á sviði hátækni og vísinda,“ segir Illugi í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Illugi segir íslenska ráðamenn á undanförnum árum hafa stutt við starfsemi Orku Energy í Kína.
„Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Katrín Jakobsdóttir og Guðbjartur Hannesson hafa öll verið vitstödd undirritanir samninga sem Orka Energy hefur gert við samstarfsaðila sína í Kína. Þessi starfsemi Orku hefur leitt til þess að tugir íslenskra vísindamanna og sérfræðinga á sviði jarðhita hafa fengið störf vegna jarðhitaverkefna Orku í Kína,“ segir Illugi.

Illugi segist einnig hafa starfað fyrir fleiri fyrirtæki meðan hann var utan þings, þar á meðal að verkefnum í Asíu. Meðal þeirra verkefna var skoðun á möguleikum á markaðssetningu á snyrtivörum líftæknifélagsins Orf í Asíu.