Iniesta vildi taka vítið sem Ramos klúðraði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2016 17:30 vísir/epa
Andrés Iniesta vildi taka vítaspyrnuna sem Spánverjar fengu í leiknum gegn Króötum í D-riðli á EM 2016 í gærkvöldi. Spánn fékk vítaspyrnu í stöðunni 1-1 á 70. mínútu í leiknum í Bordeaux þegar Sime Vrsaljko braut á David Silva. Sergio Ramos fór á punktinn en Daniel Subasic varði spyrnu hans. Ivan Perisic skoraði svo sigurmark Króatíu þremur mínútum fyrir leiklok. „Ég ætlaði að taka vítið en Ramos var sjálfsöruggur og sá sem tekur vítið er sá eini sem getur klúðrað því,“ sagði Iniesta eftir leikinn. „Sá sem fer á punktinn nýtur stuðnings hinna í liðinu. Við vorum óheppnir að vítið fór forgörðum,“ bætti Iniesta við. Spánverjar misstu af toppsætinu í D-riðli vegna tapsins í gær og þurfa því að mæta Ítölum í 16-liða úrslitum á mánudaginn. „Svona gerist og nú þurfum við að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Ítalíu. Við ætlum okkur að fara eins langt og við getum,“ sagði Iniesta sem hefur verið einn besti leikmaður EM í Frakklandi. „Við erum með sterkara lið á pappírnum en þú veist aldrei. Svona lagað gerist í fótbolta og við þurfum að vera búnir undir allt.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Þrjátíu persónulegar bætingar á MÍ og Eir Chang tvöfaldur meistari Sport Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Fleiri fréttir Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Sjá meira