Fyrsta lota
Hamilton var fljótastur í fyrstu lotunni, hann var 0,851 sekúndu á undan Kimi Raikkonen á Ferrari. Rosberg var ekki nema fimmti í fyrstu lotunni, hann var rétt rúmri sekúndu á eftir Hamilton.
Þeir sem féllu úr leik í fyrstu umferð voru Toro Rosso ökumennirnir, Sauber ökumennirnir, Esteban Ocon á Manor og Kevin Magnussen á Renault.
Önnur lota
Hamilton var aftur fljótastur í annarri umferð. Rosberg var þó talsvert nær eða rétt rúmlega 0,1 sekúndu á eftir Hamilton.
Red Bull menn spiluðu leikinn þannig að þeir settu tíma á ofur-mjúku dekkjunum öfugt við aðra sem notuðu últra-mjúku dekkin sem eru ögn mýkri en þau ofur mjúku. Þeir ætla því að keyra lengra inn í keppnina á morgun.
Í annarri lotunni duttu út; Haas ökumennirnir, Pascal Wehrlein á Manor, Jolyon Palmer á Renault, Jenson Button á McLaren og Valtteri Bottas á Williams.
Þriðja lota
Í fyrstu tilraun í þriðju lotunni tókst Hamilton að vera fljótari en Rosberg svo munaði þriðjung úr sekúndu.
Rosbberg virtist ætla að hafa Hamilton en hann fjaraði út undir lok hringsins og endaði þriðjung úr sekúndu á eftir Hamilton.
Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 12:30 á morgun, á Stöð 2 Sport.
Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.