Dóttir hennar, Margrét Hergils Owensdóttir, fór með afa sínum, Valdimar Jóhannessyni, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn síðustu helgi til að færa garðinum snuðið sitt. Er þetta táknræn athöfn sem margir foreldrar kannast við og gera mörg börn þetta á ári hverju til að marka þau tímamót að hætta að nota snuð. Að segja skilið við dagana sem lítið barn og ganga í raðir stærri krakka.
Það sem gerði þessa stund enn tilkomumeiri var að forsetahjónin, herra Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, voru í garðinum á sama tíma með börnum sínum.
„Fyrir henni var þetta bara ósköp indæll karl,” segir Kara, aðspurð um hvernig Margréti hafi litist á forseta vor.
„Henni fannst þó mjög sniðugt að Guðni og Eliza töluðu bæði íslensku og ensku, enda er hún Margrét tvítyngd þar sem pabbi hennar er frá Bandaríkjunum,“ bætir Kara við.

En gerði Margrét sér grein fyrir því að forseti Íslands tæki þátt í þessari mikilvægu stund?
„Nei, hún fattaði það ekki, enda tiltölulega nýorðin þriggja ára. En við erum búin að ræða þetta mikið síðan, þannig að henni þykir þetta allt saman mjög merkilegt núna,“ segir Kara glöð í bragði.
Aðskilnaðurinn við snuðið var búinn að vera í bígerð í dágóðan tíma að sögn Köru, enda átaknleg tímamót í lífi hvers barns.
„Afi hennar, pabbi minn, hefur farið með mörg barnabörn sín á þennan stað og gert þetta að athöfn fyrir þau þegar þau eru tilbúin að hætta með duddu. Hún og afi hennar voru búin að ræða þetta í nokkra mánuði og hann sagði alltaf að hann skildi fara með henni þegar að hún væri tilbúin. Hún bað mig svo um að hringja í hann á laugardaginn síðasta og þá tilkynnti hún honum að nú væri hún tilbúin. Afinn lagði strax af stað til að sækja hana. Ég hafði ekki hugmynd um að hún vildi hringja út af þessu,“ segir Kara hlæjandi.
Margréti gekk afar vel að gefa Fjölskyldu- og húsdýragarðinum snuðið sitt og auðvitað sakaði ekki að forseti Íslands veitti henni stuðning í verki.
„Henni þótti þetta ekkert mál, frekar mikið sport að skilja þarna dudduna eftir,“ segir móðir Margrétar. En hvað með framhaldið, er mikill snuðsöknuður að hrjá þessa þriggja ára hnátu?
„Það var smá sjokk um kvöldið þegar hún átti að fara að sofa að vita til þess að duddan hafði orðið eftir, en hún er hægt og rólega að sættast á duddulausa tilveru,“ segir Kara kímin.