Hópur karlpresta og karldjákna í þjóðkirkjunni hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir heita því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja konum öryggi í þjóðkirkjunni og annars staðar þar sem þeir hafa völd eða áhrif.
Í tilkynningu segir að þeir heiti að líða ekki kynferðislega áreitni og valdbeitingu og að tilkynna ef þeir verða vitni að slíku.
49 karlar skrifuðu undir eftirfarandi ákall:
Við, karlprestar og karldjáknar í þjóðkirkjunni, heitum því að gera allt sem við getum til að tryggja konum öryggi innan þjóðkirkjunnar og þar sem við höfum völd og áhrif.
Þöggun um kynferðislega áreitni og valdbeitingu verður ekki liðin af okkar hálfu.
Við munum tilkynna áreitni sem við verðum vitni að.
Undirskriftarlistinn var settur fram í lokuuðm umræðuhópi presta, djákna og guðfræðinga. Í tilkynningu segir að margir guðfræðimenntaðir, djáknar sem og prestar hafa valið að vera ekki aðilar að hópnum og var skammur tími gefinn til undirritunnar.
„Listinn tjáir því aðeins heit þeirra sem sáu undirritunarboðið og segir ekkert um afstöðu annarra sem ekki höfðu möguleika á að skrifa undir,“ segir í tilkynningu
Prestarnir sem skrifuðu undir eru:
1. Aðalsteinn Þorvaldsson
2. Axel Á. Njarðvík
3. Arnaldur Bárðarson
4. Árni Svanur Daníelsson
5. Baldur Kristjánsson
6. Bolli Pétur Bollason
7. Bragi J. Ingibergsson
8. Davíð Þór Jónsson
9. Fjölnir Ásbjörnsson
10. Friðrik Hjartar
11. Fritz Már Jörgensen
12. Grétar Halldór Gunnnarsson
13. Guðni Már Harðarson
14. Guðmundur Brynjólfsson
15. Guðmundur Örn Jónsson
16. Gunnar Stígur Reynisson
17. Gylfi Jónsson
18. Halldór Reynisson
19. Hans Guðberg Alfreðsson
20. Haraldur M. Kristjánsson
21. Hreinn Hákonarson
22. Ingólfur Hartvigsson
23. Jón Dalbú Hróbjartsson
24. Jón Ármann Gíslason
25. Jón Ómar Gunnarsson
26. Kjartan Jónsson
27. Kristján Björnsson
28. Magnús Björn Björnsson
29. Magnús Erlingsson
30. Oddur Bjarni Þorkelsson
31. Ólafur Jóhann Borgþórsson
32. Ólafur Jón Magnússon
33. Páll Ágúst Ólafsson
34. Sigfinnur Þorleifsson
35. Sigfús Kristjánsson
36. Sighvatur Karlsson
37. Sigurður Arnarson
38. Sigurður Árni Þórðarson
39. Sigurður Grétar Helgason
40. Skúli S. Ólafsson
41. Svavar Alfreð Jónsson
42. Svavar Stefánsson
43. Vigfús Bjarni Albertsson
44. Viðar Stefánsson
45. Þorgeir Arason
46. Þorvaldur Víðisson
47. Þór Hauksson
48. Þórhallur Heimisson
49. Þráinn Haraldsson