Breska leikkonan Minnie Driver segir að það sé í raun ómögulegt fyrir karlmenn að setja sig í spor kvenna sem þurfa að þola kynferðislega áreitni og misnotkun dag hvern. Ummælin eru höfð eftir Driver í viðtali við breska dagblaðið The Guardian. Driver ræddi þar viðbrögð leikarans Matt Damon við vitundarvakningu um kynferðisofbeldi í Hollywood síðustu mánuði.
„Litróf hegðunar“
Driver og Damon áttu í ástarsambandi á tíunda áratugnum og léku saman í Óskarsverðlaunamyndinni Good Will Hunting. Í viðtali, sem sýnt var á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, var Damon inntur eftir viðbrögðum við #MeToo-byltingunni sem hófst eftir að fjölmargar konur stigu fram og sökuðu kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi.

Damon sagði meinta kynferðislega áreitni af hálfu valdamikilla karlmanna fela í sér ákveðið „litróf hegðunar.“ Hann sagði mun á því að „klappa einhverjum á rassinn“ og nauðgun eða barnaníði. Taka þyrfti á málinu í öllum tilvikum en um eðlismun væri að ræða. Því bæri að forðast að blanda slíkum atvikum saman.
Driver lýsti yfir óánægju sinni með ummæli leikarans. „Guð minn góður, í alvörunni?“ ritaði hún í færslu á Twitter-reikningi sínum. Leikkonan Alyssa Milano, ein þeirra fyrstu sem kom #MeToo-myllumerkinu á kortið, skipaði sér til að mynda í lið með starfssystur sinni og deildi færslunni.
God God, SERIOUSLY? https://t.co/NDZFrLDXil
— Minnie Driver (@driverminnie) December 15, 2017
Í viðtali við The Guardian á laugardag tjáði Driver sig enn frekar um málið.
„Ég þurfti nauðsynlega að segja eitthvað. Ég hef áttað mig á því að flestir karlmenn, góðir menn, mennirnir sem ég elska, það eru ákveðin mörk. Þeir geta einfaldlega ekki skilið hvað kynferðisofbeldi er, þegar það er daglegt brauð,“ sagði Driver.
„Ég held í hreinskilni sagt að þangað til við verðum á sömu blaðsíðu, þá geturðu ekki rætt kynferðisofbeldi við konuna sem verður fyrir því. Karlmaður getur ekki gert það. Enginn getur það. Þetta er svo einstaklingsbundið og persónulegt að það er særandi þegar valdamikill karlmaður stígur fram og byrjar að setja skilmála.“
Nauðsynlegt að góðir og klárir menn taki afgerandi afstöðu gegn ofbeldi
Damon tjáði sig enn fremur um ásakanirnar sem bornar hafa verið á hendur Weinstein, þingmanninum Al Franken, Kevin Spacey og grínistanum Louis CK. Damon lofaði þann síðastnefnda í hástert fyrir að sýna augljósa iðrun vegna gjörða sinna. Louis CK játaði á dögunum að hafa ítrekað fróað sér fyrir framan konur, þvert á samþykki þeirra.
„Ég þekki ekki Louis CK. Ég hef aldrei þekkt hann. Ég er aðdáandi hans, en ég held að hann muni ekki sýna af sér þessa hegðun aftur,“ sagði Damon. Driver var einnig óánægð með þessi ummæli og sagði hugsunarháttinn skaðlegan.
„Ef góðir menn eins og Matt Damon hugsa svona þá erum við í helvíti miklum vandræðum. Við þörfnumst þess að góðir og klárir menn segi að þetta sé allt saman slæmt, fordæmi þetta allt og byrji upp á nýtt.“
Leikkonan Mia Sorvino steig nýlega fram og sagði Harvey Weinstein ástæðu þess að ferill hennar hafi farið út af sporinu. Leikstjórinn Peter Jackson sagði í viðtali í vikunni að hann telji að Weinstein bræðurnir hafi vísvitandi talað illa um tilteknar leikkonur, þar á meðal Sorvino og Ashley Judd, vegna þess að þær höfðu hafnað Harvey kynferðislega. Sorvino er ein fjölmargra kvenna sem sakað hafa valdamenn í Hollywood um kynferðislega áreitni.