Samkvæmt heimildum Vísis er nú unnið að því að setja saman mótframboð og hefur nafn Sólveigar Önnu Jónsdóttur verið nefnt sem hugsanlegt formannsefni þeirra sem vilja fara fram gegn núverandi forystu. Vísi tókst ekki að ná tali af henni nú síðdegis.
Framboðsfrestur rennur út klukkan 16:00 á mánudaginn næstkomandi. Boðað hefur verið til fundar í kvöld þar sem farið verður nánar yfir stöðu mála og að öllum líkindum gengið frá mótframboði.

Nýr kafli tekur við hjá Sigurði Bessasyni
Vísir ræddi við Sigurð Bessason á dögunum, hann hverfur nú frá formennsku í Eflingu eftir 18 ára starf. Hann segir þetta eðli máls samkvæmt. Þegar menn hafa verið nægilega lengi til starfa taki annað við.
„Það liggur ekkert fyrir um það hvað ég er að fara að gera. engin plön um það. Engu ráðstafað en við tekur nýr kafli. Nýtt tímabil tekur við og maður skipuleggur líf sitt uppá nýtt,“ segir Sigurður.
Hann segir að uppstillingarnefnd hafi það hlutverk með höndum innan félagsins að stilla upp stjórn á hverjum tíma. „Síðan er sá listi tilkynntur og auglýstur eins og búið er að gera. Og af aflokknum þeim tíma kemur í ljós hvort um er að ræða annan lista. Skipt er út á þessu ári en inn fara átta nýir í 15 manna stjórn.“

Sigurður segir að sér sé ekki kunnugt um mótframboð. „Það eru sjálfsagt alltaf einhverjar vangaveltur. En, fyrir liggur að listi uppstillinganefndar nýtur stuðnings ríkjandi forystu.
„Þetta gerist þannig að uppstillinganefnd leggur fram á hverjum tíma hverjir eigi að koma inn, fer til trúnaðarráðs og það leggur á endanum blessun sína yfir það. er að koma þarna inn. Ungur maður sem gefur kost á sér sem formaður og ég held að hann sé mjög gott formannsefni í félaginu.“
Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistafélags Íslands, er áhugasamur um stöðu mála í verkalýðshreyfingunni. Og hann telur stórtíðindi í vændum. Gunnar Smári segir lykilatriði fyrir launafólk að Efling, hvar lunginn af láglaunafólki er, sé í lagi, og telur góðar líkur á að nýr listi nái máli.
Gamli formaðurinn tapar alltaf
„Fólk sem er í félaginu, grasrótinni, er að undirbúa mótframboð gegn lista forystunnar. Fundur í kvöld. Í gömlu dósaverksmiðjunni,“ segir Gunnar Smári og rekur það að eftir hrun hafi það verið regla að nýtt framboð innan hreyfinga launafólks hafi sigrað í kosningum. Hann nefnir VR og Kennarasambandi sem dæmi.

Stórtíðindi ef nýtt framboð nær brautargengi
Á undirbúningsfundi í vikunni var kallað á Ragnar Þór sem fór yfir það hvernig breytingar innan verkalýðshreyfingarinnar ganga fyrir sig. Þar sagði hann að fundarmenn væru bylgingin sem þyrfti að verða.
Ef þetta gengur eftir þýðir þetta að „Ragnar Þór og Vilhjálmur Birgisson á Akranesi munu leiða baráttu verkalýðsins á næstu árum. Sem eru stórfréttir og gleðitíðindi fyrir stóran hluta verkalýðs. Venjulegu fólki finnst forystan ekki tala sínu máli,“ segir Gunnar Smári sem fylgist af áhuga með framvindu mála.
Meðal þess sem stuðningsmenn nýs framboðs þykir skjóta skökku við er að á lista uppstillinganefndarinnar er ekki einn einasti af erlendu bergi brotinn, sem þó eru stór hluti félagsmanna Eflingar.
Verkafólk ber góðærið á herðum sér en ber ekkert úr býtum
Uppfært 15:30
Vísi tókst að ná Sólveigu Önnu sem var ekki tilbúin að segja til um það á þessu stigi máls hvort hún muni gefa kost á sér til að leiða lista mótframboðs. Hún segir að það muni liggja fyrir á fundinum sem boðað hefur verið til í kvöld.

Sama hversu verkafólk hleypur hratt...
„En, við eigum þetta sameiginlega að telja að ekki sé lengur hægt að bjóða verkafólki á Íslandi uppá það að búa við þetta svakalega arðrán. Við höldum raunverulega samfélaginu á herðunum og hin mikilvæga vinna okkar skilar okkur litlu sem engu til baka. Við fórum í gegnum fyrra góðærið án þess að uppskera neitt. Og við þurftum að taka á okkur kreppuna á mjög brútal hátt, og verkafólk á Íslandi veit það að af reynslu að kreppur eru hrikalegar fyrir vinnandi fólk.“
Sólveig Anna segir að nú sé komið annað góðæri og enn á ný sé verkafólk í þeirri stöðu að þurfa að keyra það áfram með stöðugri vinnu sinni.
„Fólk er í tveimur og fleiri vinnum, af því að húsnæðiskostnaður hefur hækkað brjálæðislega og það skiptir engu máli hvað ivð hlaupum hratt og mikið, okkur tekst aldrei að afla nógu mikilla tekna til að geta rekið eðlilegt og öruggt líf.“