Hljómsveitin stendur á tímamótum en loksins getur hún boðið sömu laun og fyrir sambærilegt starf í Sinfóníuhljómsveit Íslands, eitthvað sem þótti fjarlægur draumur þegar hún var stofnuð árið 1993. Fyrir utan að hafa í hávegum flutning á klassískri tónlist hefur hljómsveitin á síðustu árum sérhæft sig í upptökum á kvikmyndatónlist og stuðlað að frumflutningi á nýrri íslenskri sinfónískri tónlist.
Á yfirstandandi starfsári hefur verið uppselt á 14 tónleika sem hljómsveitin hefur tekið þátt í. Sveitin hefur á sama tíma jafnframt leikið fyrir ríflega 14.000 tónleikagesti,bæði á Íslandi og í Færeyjum.

Kjartan hefur einmitt verið í hljómsveitinni frá upphafi. „Ég hef séð hljómsveitina vaxa og dafna. Þegar ég var ungur og að byrja var ekki til neitt hentugt húsnæði. Til að spila í íþróttaskemmunni þurfti að fara um bæinn á heyvagni og safna stólum úr grunnskólum. Nú erum við með Hof sem er frábært. Þegar við spiluðum til dæmis í Akureyrarkirkju þá þurfti að taka allt til ef það var brúðkaup eða eitthvað álíka og setja inn aftur eftir athöfn,“ segir hann og getur varla haldið aftur af hlátrinum þegar hann rifjar upp hvernig tímarnir hafa breyst.