Bensínsprengju kastað inn um glugga í Súðarvogi Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. apríl 2018 06:23 Brennuvargurinn komst undan. Vísir/ernir
Eldur kom upp í húsi við Súðarvog skömmu eftir miðnætti í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang voru íbúar búnir að ráða niðurlögum eldsins en engu að síður urðu töluverðar skemmdir á húsinu. Lögreglan telur að eldurinn hafi kviknað eftir að einstaklingur grýtti „bensínsprengjum“ inn um glugga, sem og í húsið sjálft. Brennuvargurinn komst undan og er málið nú til rannsóknar. Skömmu áður hafði lögreglan haft hendur í hár pars sem grunað er um húsbrot á Grettisgötu. Parið var handtekið á gistiheimili við götuna þar sem þau eru sögð hafa verið í óleyfi í leiguíbúð. Að sögn lögreglu mun þetta hafa verið ítrekað brot hjá parinu og var það flutt í fangageymslu þar sem parið hefur mátt verja nóttinni. Þá réðst farþegi að leigubílstjóra við Austurbrún. Farþeginn er sagður hafa ógnað bílstjóranum með vopni og haft í hótunum við hann, er hann neitaði að greiða fargjaldið. „Árásaraðilinn sem var í mjög annarlegu ástandi var handtekinn skömmu síðar og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Hann er einnig grunaður um vörslu fíkniefna,“ segir í skeyti lögreglunnar.
Lögreglumál Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Erlent Fleiri fréttir Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Aðalsteinn leiðir samráðshóp um öryggis- og varnarmál Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Sjá meira