Þegar hefur verið grafið niður alla Ártúnsbrekkuna og allt að eystri kvíslinni. Grafa þarf skurð sem þverar báðar kvíslarnar. Með athafnasvæði er sagt að heildarbreidd skurðstæðisins gæti verið um tólf til fjórtán metrar. Grafa á nýjan farveg fyrir árnar á meðan framkvæmdir standa yfir sem gert er ráð fyrir að taki um tvær vikur. Hentugur staður sem er til skoðunar fyrir framhjáhlaup er á milli stöpla undir núverandi lagnastæði fyrir hitaveitu.
„Gera má ráð fyrir að framhjáhlaup í austurkvíslinni þyrfti að vera í kringum 100 metra langt og að samsvarandi lengd núverandi farvegs færi á þurrt. Framhjáhlaup í vesturkvíslinni væri líklega styttra. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir væru utan veiðitíma og þekkts göngutíma laxfiska,“ segir í umsögn Hafrannsóknastofnunar um málið.
„Líkur eru á að smádýr og fiskar leiti inn á raskað svæði í Elliðaánum af nærliggjandi svæðum og að lífríki komist í samt lag á tiltölulega stuttum tíma,“ segir þar enn fremur. Hafrannsóknastofnun bendir á fjölmörg atriði sem hafa þurfi í huga varðandi framkvæmdina.

„Framkvæmdin er sannarlega mikilvæg fyrir starfsemi fráveitu, hitaveitu, rafveitu og vatnsveitu í Reykjavík og ekki hjá því komist að hið gamla veitukerfi sem liggur í stokknum í Elliðaárdal fari í endurnýjun. Að mati USKR eru þó umhverfisáhrif þeirrar framkvæmdar sem kynnt er í fyrirspurn framkvæmdaaðila af þeim toga að skynsamlegast í stöðunni sé að framkvæma mat á umhverfisáhrifum,“ segir skrifstofa umhverfisgæða hins vegar.
„Óhjákvæmilegt er að mikið umhverfisrask verði, jafnvel þótt reiknað sé með að áhrifin verði að miklu leyti tímabundin. Umhverfisog skipulagssvið Reykjavíkur er því ekki sammála framkvæmdaaðila um að það sé alveg ljóst að framkvæmdin muni hafa óveruleg umhverfisáhrif í för með sér.“
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík kveðst taka undir álit og rök skrifstofu umhverfisgæða. Embættið sé að undirbúa heildarendurskoðun á deiliskipulagi fyrir Elliðaárdalinn og von sé á vinnslutillögu þess efnis í haust. „Tekið er undir að fyrirhuguð framkvæmd Veitna sé mikilvæg fyrir starfsemi Veitna og ekki hjá því komist að gamla veitukerfið fari í endurnýjun,“ segir skipulagsfulltrúi sem óskar eftir samstarfi við Veitur og Orkuveituna um málið.