Hitinn hrellir Valsmenn í Þrándheimi Anton Ingi Leifsson skrifar 17. júlí 2018 22:30 Arnar Sveinn í Evrópuleik á síðustu leiktíð. vísir/andri
Valsmenn eru nú staddir í Þrándheimi í Noregi en liðið spilar við heimamenn í Rosenborg annað kvöld. Hitabylgja er í Noregi og hefur valdið einhverjum vandræðum. Leikurinn er síðari leikur liðanna í fyrstu umferð í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Valur vann fyrri leikinn 1-0. Markið skoraði Eiður Aron Sigurbjörnsson. Þeir eru því í ágætis stöðu fyrir síðari leikinn, sem verður spilaður annað kvöld, en ljóst er að verkefnið verður ærið. Sigurliðið úr rimmunni mætir Celtic í næstu umferð. Valsmenn flugu frá Reykjavíkurflugvelli til Þránheims í gær og æfðu þar bæði í gær og í dag. Í dag æfðu þeir á sjálfum Lerkendal-leikvanginum sem tekur rúmlega tuttugu þúsund manns. Hitinn er mikill í Noregi þessa daganna og hann hefur hrellt einhverja Valsmenn. Um þrjátíu stiga hiti var í Þrándheimi í adg og hitinn verður rúmlega tuttugu gráður er flautað verður til leiks á morgun. Einhverjir Valsmenn hafa lent í vandræðum með hitann og bakvörðurinn Arnar Sveinn Geirsson greinir frá því á Twitter-síðu sinni að flestir leikmenn Vals séu farnir úr rigningu á Íslandi í viftu á herbergin í Noregi.Fórum vælandi úr rigningunni á Íslandi í gær. Vældum svo yfir hitanum hér í Þrándheimi. Allir komnir með viftu inn á herbergi. Þetta er vandlifað.— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) July 17, 2018
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira