Símon Þór Jónsson er nýr sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs EY á Íslandi. Símon Þór hóf störf hjá EY á árinu 2016 og er einn af eigendum félagsins.
Í tilkynningu frá EY er ferill Símons rakinn. Þar segir að hann sé lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með diploma í hagfræði frá sama skóla. Þá hefur hann sótt sér menntun í Leiden University varðandi tvísköttunarsamninga. „Símon Þór hefur mikla þekkingu og reynslu á flóknum skattamálum og hefur áratuga starfsreynslu á því sviði,“ segir í tilkynningunni.
Hann hefur áður starfað hjá Ríkisskattstjóra og skatta- og lögfræðisviði KPMG og Deloitte. Símon Þór er kvæntur Drífu Magnúsdóttur og eiga þau fjögur börn.
