725 dagar síðan Haukar unnu FH-inga í Olís deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2018 15:00 FH-ingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson og Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson eigast við. vísir/ernir
FH tekur í kvöld á móti Haukum í stórleik tólftu umferðar Olís deildar karla í handbolta en FH-ingar geta komist upp fyrir nágranna sína með sigri í leiknum. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 19.15 og strax eftir leikinn tekur Seinni bylgjan við eða klukkan 21.15. Það verður fróðlegt að sjá hvort Haukum tekst að losa tak FH-inga og komast aftur upp að hlið Vals á toppi deildarinnar. Haukar eru með einu stigi meira en FH þannig að vinni FH-inga þá komast þeir upp fyrir Hauka og í annað sæti deildarinnar. FH-ingar hafa haft betur í deildarleikjum liðanna undanfarið. FH vann báða deildarleiki liðanna á síðasta tímabili en fyrri leik liðanna í vetur lauk með jafntefli. Haukar hafa því spilað þrjá deildarleiki í röð á móti FH án þess að fagna sigri. Síðasti sigur Hauka á FH kom í Kaplakrika 15. desember 2016 eða fyrir 725 dögum síðan. Sigur Haukanna fyrir rétt tæpum tveimur árum er einnig eini deildarsigur þeirra á FH-liðinu í síðustu sjö viðureignum félaganna. FH hafa fagnað fjórum sinnum sigri á sama tíma.Síðustu ellefu deildarleikir FH og Hauka:2018-19 Jafntefli á Ásvöllum (29-29)2017-18 FH vann með 1 marki í Kaplakrika (30-29) FH vann með 4 mörkum á Ásvöllum (27-23)2016-17 Haukar unnu með 1 marki í Kaplakrika (30-29) FH vann með 4 mörkum á Ásvöllum (28-24)2015-16 Jafntefli á Ásvöllum (26-26) FH vann með 1 marki í Kaplakrika (28-27) Haukar unnu með 7 mörkum á Ásvöllum (32-25)2014-15 Haukar unnu með 13 mörkum í Kaplakrika (33-20) Jafntefli á Ásvöllum (22-22) FH vann með 1 marki í Kaplakrika (25-24)
Olís-deild karla Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu Sjá meira