Stolnar persónuupplýsingar þýskra stjórnmálamanna birtar á netinu Kjartan Kjartansson skrifar 4. janúar 2019 11:26 Fulltrúar nærri því allra flokka á þýska þinginu urðu fyrir barðinu á þrjótunum. Aðeins AfD virðist hafa sloppið. Vísir/EPA
Greiðslukortaupplýsingar og farsímanúmer er á meðal upplýsinga um hundruð þýskra stjórnmálamanna sem tölvuþrjótar hafa stolið og birt á netinu. Félagar í öllum stjórnmálaflokkum Þýskalands nema hægriöfgaflokksins Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) urðu fyrir barðinu á þrjótunum. Stolnu gögnin voru birt á Twitter. Í þeim er einnig að finna heimilisföng, persónuleg bréf og afrit af persónuskírteinum, að sögn The Guardian. Ekki liggur fyrir hverjir hakkararnir eru eða hvað þeim gengur til. Tölvupóstfang Angelu Merkel kanslara og nokkur bréf hennar var lekið og talsmaður Vinstriflokksins (þ. Linke) hefur staðfest að þingmenn flokksins séu á meðal þeirra sem áttu persónuupplýsingarnar sem var stolið.Breska ríkisútvarpið segir að fjölmiðlafólk og þekktir einstaklingar hafi einnig orðið fyrir árásinni. Það hefur eftir Katarinu Barsley, dómsmálaráðherra, að innbrotið sé „alvarleg árás“. Umfang hennar sé enn ekki ljós. Ekki er vitað til þess að brotist hafi verið inn í tölvukerfi þýskra stjórnvalda. Rússneskum tölvuþjótum hefur verið kennt um fyrri innbrot og árásir, þar á meðal þegar gögnum var stolið úr tölvum þýska þingsins árið 2015 og ráðist var á netkerfi ríkisstjórnarinnar í fyrra.
Tölvuárásir Þýskaland Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Innlent Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Erlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Fleiri fréttir Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Frans páfi er látinn Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður „Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard Sjá meira