Guðlaug Edda Hannesdóttir er fremsta þríþrautarkona Íslands og er að vinna að því að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Tókýó á næsta ári.
Edda er ein af átta íþróttamönnum sem Ólympíusamhjálpin styrkir vegna undirbúnings fyrir Tókýó 2020 en koma úr frjálsum íþróttum, sundi, skotíþróttur, fimleikum og lyftingum.
Guðlaug Edda hefur skrifað mjög áhugaverða pistla inn á fésbókarsíðu sína þar sem hún leyfir áhugasömum að skyggnast inn í heim íslenskrar þríþrautarkonu sem á möguleika á að skrifa nýjan kafla í íslenska íþróttasögu með því að komast inn á Ólympíuleikana á næsta ári.
„Ég hef alltaf verið "góð" á æfingum. Mér finnst gaman að ýta mér á æfingum og sjá árangur. Þegar ég var í sundi átti ég það til að æfa annaðhvort alltof mikið eða alltof erfitt, stundum bæði! Á síðasta ári gerðist það sama fyrir mig í þríþrautinni, ég varð "alltof góð" á æfingum. Þegar kom að því að taka formið út í keppnum var tankurinn oft tómari en æfingarnar mínar gáfu til kynna,“ skrifar Guðlaug Edda en á nýju ári ætlar hún að njóta þess betur að keppa og hafa meira gaman af því að keppa aftur.
„Mig langar til þess að færa mig frá "mér finnst gaman að ýta mér á æfingum og sjá árangur" yfir í "mér finnst gaman að ýta mér í keppnum og sjá árangur", og keppa með öllu hjarta og sál,“ skrifar Guðlaug Edda og það snýst þá um líka að láta vaða í keppni og þora að gera einhver mistök.
„En það mikilvægasta af öllu er að mig langar til þess að gera fullt af mistökum, því það er þannig sem við verðum betri. Það er ekkert sem heitir að mistakast, heldur bara mistök til þess að læra af! Mig langar ekki að vera fullkomin, heldur fullkomlega ófullkomin og hafa ótrúlega gaman,“ skrifar Guðlaug Edda og má lesa allan pistilinn hennar hér fyrir neðan.