Veðurspáin fyrir daginn er afar slæm og er gul viðvörun í gildi á Suðurlandi þar sem spáð er suðvestan stormi eða roki með hviðum upp í allt að 40 metra á sekúndu.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að slæmt veður muni hafa áhrif á leit í og við ána í dag þar sem leitaraðstæður séu mjög erfiðar í svona veðri.
Þannig er til dæmis ekkert flugveður og mun þyrla Landhelgisgæslunnar því ekki nýtast til leitar, að minnsta kosti á meðan veðrið gengur yfir, en hún var kölluð út í gærkvöldi.
Hér fyrir neðan má sjá myndband frá vettvangi í gærkvöldi.