

Langt í land
Forystumenn SA, ásamt Samtökum iðnaðarins, hafa réttilega fallið frá röngum áherslum samtakanna í peningamálum á sínum tíma og þess í stað horft til raunhæfra lausna sem miða að því að bæta umgjörðina um krónuna í því skyni að tryggja efnahagslegan stöðugleika. Engin stefna í peninga- og gjaldmiðlamálum er fullkomin heldur snýst valið öðrum þræði um mismunandi slæma valkosti. Það eru ekki neinar einfaldar lausnir í boði heldur skiptir öllu máli, eins og fjallað var um í skýrslu starfshóps um endurskoðun peningastefnunnar, að farið sé eftir þeim leikreglum sem hvert fyrirkomulag krefst á hverjum tíma. Þar hafa Íslendingar iðulega verið eftirbátar ríkja á hinum Norðurlöndunum – hvort sem litið er til hagstjórnar hins opinbera, ríkisfjármála eða vinnumarkaðarins.
Það vekur hins vegar furðu þegar því er haldið fram að gengismálin hafi stuðlað að hinum mikla vanda á vinnumarkaði. Ekkert gæti verið jafn fjarri sanni. Gengisstyrkingin skipti sköpum í að viðhalda jafnvægi í þjóðarbúskapnum samtímis miklum vexti ferðaþjónustunnar og stuðlaði um leið að verðstöðugleika og lægri vöxtum. Krónan vann sitt verk. Fyrir launafólk skilaði þessi gengishækkun – ásamt þeim launahækkunum sem um var samið á vinnumarkaði – sér sömuleiðis í stórfelldri kaupmáttaraukningu. Ábatinn fyrir atvinnurekendur hefur að sama skapi verið minni en samanlagður hagnaður fyrirtækja í Kauphöllinni, svo dæmi sé tekið, hefur dregist saman um meira en sextíu prósent frá 2015. Hækkandi launakostnaður hefur þar ráðið mestu. Hefði Ísland verið með „stöðuga“ mynt eins og evruna, sem hefur reyndar ekki síður en krónan sveiflast gagnvart öðrum gjaldmiðlum síðustu ár, hefði byggst upp meira ójafnvægi sem hefði að lokum framkallað harkalegan efnahagssamdrátt.
Fastgengisstefna krefst mikils aga í ríkisfjármálum og eins stöðugleika á vinnumarkaði. Slíkur agi, sem Íslendingar hafa jafnan ekki verið þekktir fyrir, verður ekki innleiddur með því einu að skipta um mynt og þær hatrömmu deilur sem við sjáum nú við gerð kjarasamninga sýna að við eigum þar enn langt í land. Íslenska hagkerfið, sem á lítið sameiginlegt með evrusvæðinu, er í grunninn byggt á fáum stoðum – einkum ferðaþjónustu og sjávarútvegi – sem undirstrikar mikilvægi þess að búa við sveigjanlegt gengisfyrirkomulag þar sem gengið getur aðlagast nýjum veruleika við framboðsskell í okkar helstu útflutningsgreinum. Að vera föst í spennitreyju myntbandalags við slíkar aðstæður væri aðeins uppskrift að efnahagslegu stórslysi sem myndi hitta venjulegt launafólk verst fyrir.
Skoðun

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar