En hvernig er hægt að bæta þennan vanda?
Þó EES-ríkin geti vissulega komið athugasemdum sínum um efnisatriði mála á framfæri til framkvæmdarstjórnar ESB í gegnum sameiginlegu EES-nefndina, þá hefst það ferli ekki fyrr en á síðari hluta málefnavinnunnar. Sú staða er ekki ósvipuð því að taka þátt í kökubakstri en fá einungis að koma með hugmynd að uppskrift eftir að deigið er komið í formið. Þetta atriði skiptir veigamiklu máli fyrir hagsmuni Íslands, enda er mun auðveldara að hafa áhrif á þróun tilskipana og reglugerða ESB í upphafi málefnavinnunnar frekar en á lokametrum málaundirbúnings. Með inngöngu Íslands í ESB myndi staðan gjörbreytast og styrkja samningsstöðu landsins. Ísland fengi einn fulltrúa í framkvæmdarstjórn ESB líkt og öll önnur aðildaríki, ráðherrar landsins fengju sæti í ráðherraráði ESB og Ísland fengi þjóðkjörna þingmenn inn á Evrópuþingið. Þar að leiðandi myndi Ísland öðlast sæti við borðið sem fullvalda ríki í samstarfi við önnur fullvalda ríki og tæki virkan þátt í mótun sameiginlegra reglugerða frá hugmyndarstigi til endapunkts.Sumir telja að inganga Íslands í ESB sé ógn við fullveldi landsins, en ég tel að þvert á móti muni aðild Íslands að Sambandinu ekki einungis bjóða upp á aukin lífsgæði fyrir landsmenn heldur einnig styrkja fullveldi Ísland í samanburði við núverandi fyrirkomulag. Í stað þess að þurfa hokra frammi á gangi í þeirri von um að vinaþjóðir okkar komi áherslum okkar á framfæri getum tekið málin í okkar eigin. Máltækið segir að margur er klár þótt hann sé smár og Ísland hefur sýnt það og sannað að þó við séum ekki fjölmennt samfélag höfum við alla burði til að vera virkur þáttakandi í alþjóðasamfélaginu. Tökum umræðuna, krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB og styrkjum áhrif Íslands í mótun ESB/EES reglugerða sem fullvalda ríki meðal fullvaldra ríkja. Það er tími til kominn að Alþingi sýni það og sanni að það treysti landsmönnum til að ákvarða eigin framtíð.
Höfundur er alþjóðastjórnmálafræðingur og situr í stjórn Ungra Evrópusinna.