

Kænn hvati
Umræðan meðal hagsmunahópa stúdenta, er stundum á þá leið að eini opinberi stuðningurinn við háskólanema sé námslánakerfið. Því fer fjarri. Háskólarnir – Háskóli Íslands sérstaklega – eru opinberar stofnanir, reknar að stærstum hluta fyrir opinbert fé. Háskólastúdentar greiða skrásetningargjald sem ekki stendur undir nema broti af kostnaði. Lánasjóðurinn í núverandi mynd veitir afslátt með vaxtaívilnun, og þarf að þola afskriftir vegna þeirra sem ekki endist aldur til endurgreiðslu.
Vel má velta fyrir sér hvort smáríki eins og Ísland sé of metnaðarfullt á háskólasviðinu, eins öfugsnúið og það hljómar. Boðið er upp á allar mögulegar og ómögulegar námsgreinar. Kannski ætti að einbeita sér að kjarnagreinum og hvetja fólk til að fara utan til að sækja sér annað nám. Utanfarar snúa heim og með gullvæga reynslu, landi og þjóð til heilla.
Í frumvarpi Lilju Alfreðsdóttur kemur fram að á síðustu árum hafi meðallán hjá LÍN hækkað. Námsmenn eru lengur í námi og sækja lengra og dýrara nám. Þeir eru eldri að jafnaði. Þó hefur hlutfall þeirra sem sækja nám í útlöndum lækkað.
Háskólastúdentar taka sér lengri tíma en áður til að ljúka námi hér heima og sækja síður út. Hvorugt er æskilegt. Enginn græðir á því að fólk ílengist í námi. Droll í háskóla í stað þess að sækja sér iðnmenntun eða launavinnu er engum til góðs. Kerfið á að forða fólki frá örlögum eilífðarstúdentsins.
Frumvarp Lilju tekur á þessu. Með því að breyta hluta námslána til þeirra sem klára á tilsettum tíma í styrk, er fólk hvatt til að klára á réttum tíma. Frumvarpið gerir líka metnaðarfullum stúdentum auðveldara að sækja nám erlendis, enda eftir miklu að slægjast að fá 30 prósent lána felld niður. Munar um minna. Nám við bestu háskóla erlendis er oft dýrt – kostnaðurinn óyfirstíganleg hindrun fyrir suma.
Einhverjir munu gagnrýna útfærsluna á styrknum með þeim rökum að ekki sé ástæða til að niðurgreiða menntun frekar. En það er örugglega dýrara þegar upp er staðið að fólk fari sér óþarflega hægt í námi. Frumvarpið tekur á því og hvetur fólk til að flýta för.
Þegar rætt erum lánamál á Íslandi er gjaldmiðillinn alltaf fíllinn í herberginu. Mesta kjarabótin til langs tíma fyrir stúdenta og aðra lántaka á Íslandi væri að Ísland yrði hluti af stærra myntsvæði með stöðugri gjaldmiðli. Engin lausn er hins vegar í sjónmáli í þeim efnum.
Ráðherra virðist nýta tólin sem hún hefur skynsamlega. Ef nýtt námslánakerfi verður til þess að flýta för stúdenta og hvetja þá til að leita reynslu út fyrir landsteinana er til mikils unnið.
Skoðun

Nýr vettvangur samskipta?
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Nokkur atriði sem almennum borgara finnst að helst megi ekki ræða – eða mjög sjaldan
Hjalti Þórðarson skrifar

Vilja Ísland í sambandsríki
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Blikkandi viðvörunarljós
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

„Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi
Linda Jónsdóttir skrifar

Metnaðarfull markmið og stórir sigrar
Halla Helgadóttir skrifar

Hvers virði er vara ef hún er ekki seld?
Jón Jósafat Björnsson skrifar

Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar