Slysið varð um hádegisbil í gær þegar olíuflutningabíll Olíudreifingar valt með 30 þúsund lítra af olíu í tankinum. Slökkviliðið á Akureyri, lögregla og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands voru kallaðir út á slysstað.
Olía lekur enn þá út í lækinn
Starfsmenn Olíudreifingar hafa auk þess sinnt hreinsunarstarfi á slysstað síðan í gær. Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar segir í samtali við Vísi að enn sé unnið á vettvangi en ekki sé hægt að segja til um það hversu langan tíma hreinsunarstarfið muni taka.„Það getur þess vegna staðið yfir í nokkra daga og vikur ef því er að skipta.“

„Við höfum stíflað þennan læk, það var gert strax í byrjun, sem bjargaði okkur frá stærri spjöllum heldur en orðið hafa. Í þennan læk berst töluvert eldsneyti enn þá og við föngum það með flotgirðingu,“ segir Hörður.
Jarðvegurinn ekki nógu þéttur
Eftir nóttina hafi safnast töluvert eldsneyti í sérstaka safnþró og því verði dælt upp í dag. Þá er einnig notast við sérstök ísogsefni við hreinsunina og í dag verður komið fyrir tæki sem veiðir olíu ofan af vatni og dælir henni frá.„Við vitum ekki hversu miklu við náum upp af því sem fór þarna niður. En við munum vakta það og dæla því upp jafnóðum næstu daga.“
Hörður segir að lækurinn sé í raun eina greiða leiðin sem hreinsunarmenn hafi að olíunni. Jarðvegurinn á slysstað er hrjúfur og eldsneytið hripar því niður í vatnið fyrir neðan. Því hafi nánast enginn jarðvegur verið fjarlægður í gær þar sem hann fangar eldsneytið illa.

Heimsóttu bílstjórann í gærkvöldi
Bílstjóri olíuflutningabílsins var fluttur alvarlega slasaður með sjúkrabíl á sjúkrahús á Akureyri. Hörður segir að líðan hans sé mun betri en á horfðist í fyrstu.„Við heimsóttum hann í gærkvöldi. Það er mun betra útlit með hann en við fengum fyrstu fréttir af. Eins og staðan var á honum í gær mun hann ná fullum bata.“
Lögreglan á Norðurlandi vestra hafði ekki upplýsingar um tildrög slyssins í morgun. Hörður segir fyrirtækið ekki heldur hafa verið upplýst um það en ítrekar að bíllinn hafi uppfyllt allar kröfur, bílstjórinn hafi haft öll réttindi og vinnutímar hans hafi verið innan leyfilegra marka.