„Ég veit ekki með ykkur en mér finnst hann ansi sætur,“ segir Katrín í færslu á Instagram sem vakið hefur mikla athygli fylgjenda Katrínar Tönju. 1,6 milljón manns fylgja íslensku stjörnunni eftir á samfélagsmiðlinum
„Ha ha ha ég elska þetta,“ segir Annie Mist vinkona Katrínar Tönju en þær báðar hafa unnið titilinn hraustasta kona í heimi. Katrín Tanja hafnaði í fjórða sæti á leikunum sem fram fóru í Wisconsin í byrjun mánaðar.
Streat Hoerner er nú þegar orðinn Íslandsvinur því hann var á meðal keppenda á Reykjavík Crossfit Championship í maí þar sem hann hafnaði í fimmta sæti eftir frábæran lokasprett.
Líklega eru fá pör sem keppa við þau Hoerner og Katrínu Tönju þegar kemur að hreysti og fróðlegt verður að sjá hvernig sambandið þróast. Þau virðast njóta lífsins þessa dagana í Lugano í Sviss en missa þó ekki úr æfingu eins og sjá mátti á Instagarm hjá Katrínu Tönju í dag.
I don’t know about you but I think he’s kinda cuteView this post on Instagram
A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Aug 11, 2019 at 1:58pm PDT